Thursday, August 6, 2015

Kleinuhringir með vanillu og bleikum glassúr.


Kleinuhringjagleðin ræður ríkjum í höfuðborginni um þessar mundir og margir fagna því að ein stærsta kleinuhringjakeðja er komin til landsins. Mér finnst þess vegna tilvalið að koma með uppskrift að einföldum og ljúffengum kleinuhringjum fyrir þá sem nenna ekki að bíða í röð eða hafa ekki kost á að fara og fá sér einn Dunkin Donuts. Það er ekkert mál að baka þessa kleinuhringi, það eina sem þurfið er gott kleinuhringjaform sem fæst meðal annars í Hagkaup. Þetta er að sjálfsögðu hollari útgáfa að kleinuhringjum þar sem þeir eru ekki djúpsteiktir. En við erum svosem ekkert að spá í hollustu þegar kleinuhringir eru á annað borð. Það má nú leyfa sér við og við, mæli með að þið prófið þessa kæru lesendur og njótið.

Kleinuhringir með vanillubragði og bleikum glassúr 


2,5 dl Kornax hveiti
1,5 tsk. Lyftiduft
3 msk sykur
1 – 1,5 dl ab mjólk
2 msk brætt smjör
1 egg, pískað
1 tsk vanilla extract eða dropar
½ - 1 tsk vanilluduft (eða fræin úr vanillustöng)

Aðferð:
  1. Blandið öllu saman í skál, ef ykkur finnst deigið of þurrt þá bætið þið meiri ab mjólk út í deigið.Smyrjið kleinuhringjaform og sprautið deiginu jafnt í formin.
  2. Bakið við 180°C í 8 – 10 mínútur eða þangað til þeir verða gullinbrúnir.
  3. Leyfið þeim að kólna og skreytið þá með góðum glassúr.

Bleikur glassúr

50 g smjör, brætt
150 - 200 g flórsykur
Vatn eftir þörfum
Vanilludropar, magn eftir smekk
Bleikur matarlitur, magn eftir smekk (þið getið líka notað Ríbena sólberjasafa)

Aðferð:
  1. Bræðið smjör í potti. 
  2. Blandið flórsykrinum saman við og hrærið stöðugt, bætið vatninu og vanillu saman við og hrærið þar til þið eruð ánægð með áferðina á glassúrnum. 
Njótið með ísköldu mjólkurglasi. 











Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

2 comments:

  1. Sæl vertu. Hvar keyptir þú kleynuhringjaformið? Það fæst ekki í Hagkaup á Akureyri og reyndar ekki í neinni búð á Akureyri sem selur bökunarform. Kærar kveðjur, Elín Svava.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl. Ég fékk það í Hagkaup í Kringlunni fyrir nokkrum mánuðum. Annars er Allt í köku t.d. að selja formin og þau eru með vefverslun sem ég mæli með að þú skoðir ;)

      Bestu kveðjur

      Eva

      Delete