Monday, April 22, 2013

Útgáfusamningur!

Þessi dagur er aðeins betri en aðrir dagar. Í morgun kvittaði ég undir útgáfusamning að matreiðslubók Evu. Mjög skemmtileg tilfinning og spennandi tímar framundan. Ég er svo óskaplega þakklát að hafa fengið þetta tækfæri, ég þakka nú góðum lesendum fyrir að hafa fylgt mér og án ykkar hefði ég ekki verið að skrifa undir útgáfusamning í dag. 

Ég átti svolítið erfitt með að einbeita mér að próflestri í dag, fiðrildin eru svo mörg í maganum á mér. Það verður gott og gaman að klára prófin svo ég geti einbeitt mér að bókarskrifum. Þið fáið auðvitað að fylgjast grannt með þessu ferli, þetta verður spennandi. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

8 comments:

  1. Til lukku, kíki alltaf reglulega á síðuna þína og hef eldað og bakað eftir uppskriftum hjá þér, þær vekja alltaf lukku !

    mun klárlega kaupa matreiðslubókina þína :)

    kv. Sif

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk fyrir það Sif. Mikið er ég ánægð að heyra. Takk fyrir að skoða bloggið =)

      Delete
  2. Til hamingju, ég bíð spennt eftir bókinni þinni, elska síðuna þína:)

    ReplyDelete
  3. Til hamingju með samninginn, ég bíð spennt eftir bókinni þinni, ég elska síðuna þína:)

    ReplyDelete