Risotto er guðdómlegur hrísgrjónaréttur sem sameinar allt það sem mér þykir gott. Hægt er að útfæra réttinn á marga vegu og í þætti gærkvöldsins eldaði ég Risotto með ferskum aspas, stökku beikoni og sveppum. Einfalt og brjálæðislega gott með miklum parmesan. Ég pantaði mér Risotto á veitingahúsi í London fyrir nokkrum árum og kolféll fyrir honum, silkimjúkur og ómótstæðilega góður...
Risotto með ferskum aspas og stökku beikoni
- 1 msk ólífuolía + klípa smjör
- 1 laukur
- 1 sellerí stilkur
- 2 hvítlauksrif
- 4 dl arborio hrísgrjón
- 250 g smátt skorinn aspas
- 8 sveppir, smátt skornir
- 8 dl kjúklingasoð
- 2 dl hvítvín
- Salt og pipar
- 60-80 g parmesan ostur
- 2 msk smjör
Ofan á:
- 100 g beikon
- 100 g aspas
- 100 g sveppir
Aðferð:
- Hitið ólífuolíu í potti og steikið laukinn, sellerí og hvítlauk í 2-3 mínútur. Bætið smátt söxuðum aspas og smátt söxuðum sveppum út í pottinn og steikið, bætið því næst arborio grjónum út í og hrærið stöðugt.
- Hellið hvítvíninu saman við og leyfið því að sjóða niður, bætið næst kjúklingasoðinu smám saman viðog hrærið mjög vel á milli.
- Bætið parmesan ostinum og smjörinu saman við í lokin og kryddið til með salti og pipar. Steikið beikon, aspas og sveppi á pönnu þar til hráefnin eru vel stökk. Setjið Risotto á disk og skreytið með stökku beikoni, aspas og sveppum. Rífið gjarnan niður meiri parmesan og stráið yfir réttinn í lokin.
Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.
No comments:
Post a Comment