Í gær þá héldum við nokkur babyshower handa yndislegu vinkonu okkar henni Öglu.
Þetta var óskaplega skemmtilegt og amerískt. Við borðuðum á okkur gat, dáðumst að bumbunni og höfðum það gaman saman.
Ég prufaði að laga sykurmassa í fyrsta sinn og skreytti kökuna í hvítum,bleikum og bláum lit.
Rúsínan í pylsuendanum var sú að ég fékk að lita kremið inn í kökunni í þeim lit sem að sagði til um kynið á barninu. Það var krúttlegt og skemmtilegt.
Ég hengdi upp gömul föt af mér og bjó til bleyjuskreytingar.
Fríða bakaði og skreytti þessar ljómandi fínu bollakökur.
Agla að skera kökuna og spennan var mikil.
Hamingjusamir vinir.
A baby boy!
Hlökkum mikið til þess að fá prinsinn í heiminn.
Tilvonandi móðirin sveif um úr hamingju
Fyrsta barn bíóklúbbsins og verður því heiðursfélagi.
Klikkuðum alveg á því að taka myndir af öllum hópnum saman, við klikkum ekki á því í næsta hitting.
Dásamlegt kvöld og tilhlökkunin mikil, fáeinar vikur í prinsinn.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Ég vil annað babyshower STAT
ReplyDeleteKv. Stefán Jóhann
Ókeypis uppeldisfræðingur, taki til sín sem eiga.
Æðislegt kvöld ;) Og hrikalega góðar kræsingar!
ReplyDeleteKveðja Rakel Páls
Stundum að eiga yndislega að! <3
ReplyDeleteÚff ég ætla að heimta baby shower, þegar að því kemur ;)
ReplyDeleteÆðislegta skemtilegt hjá ykkur :)
Þetta er ferlega skemmtilegt og nauðsyn fyrir hverja stelpu að fá sína babyshower. Amerískt og krúttlegt :)
ReplyDelete