Saturday, February 18, 2012

Laugardags lunch í sveitinni

 Helgi enn á ný, dásemd.
Ég er á Hvolsvelli núna og  hér er virkilega gott að vera.
Veðrið er  ótrúlega fallegt og gott svo ég ætla að fara í langan göngutúr á eftir. 

Mig langaði í eitthvað létt og gott í hádegismatinn. Ristað brauð með hvítlauk og salati varð fyrir valinu.  Ótrúlega einfalt, svakalega bragðmikið og ljúffengt.

Ristaði brauð, lét smjör á brauðið, skar hvítlauk og nuddaði honum á brauðið. 
Skar niður tómata, gúrku og lambhagasalat. Setti í skál, muldi fetaost yfir, setti svo pínu olíu og pipar. 
Gott og ferskt.





Ég vona að þið hafið það sem allra best um helgina. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

2 comments:

  1. Ohh hvað ég væri sjúk í göngutúr í sveitinni núna. Njótið dúllur <3

    ReplyDelete
  2. nammi girnilegt! Er svo ánægð með bloggið þitt :) endilega skelltu inn fleiri svona djúsí hollum og fljótlegum uppskriftum ef þú átt :) Held það sé mjög vinsælt hjá mörgum - Takk x

    Sigrún
    ókunnugur fastagestur

    ReplyDelete