Hrökkbrauð er í miklu eftirlæti hjá mér. Það er eitthvað við þetta stökka og þunna brauð sem ég fæ ekki nóg af. Það erh
- 4 dl. Haframjöl
- 4 dl. Rúgmjöl
- 1 dl. Graskersfræ
- 1 dl. Sólblómafræ
- 1 dl. Sesamfræ
- 1 dl. Hörfræ
- 7 dl. Vatn
- 1 msk. Hunang
Aðferð:
- Blandið öllum þurrefnum saman í skál.
- Bætið vatni og hunanagi saman við þurrefnin og blandið vel saman.
- Dreifið blöndunni á pappírsklædda ofnplötu. Skerið í deigið með pizzahníf áður en þið setjið deigið inn í ofn.
- Bakið við 160°C í 35 mínútur. Opnið hurðina á ofninum og bakið áfram í 10 mínútur, lokið síðan ofninum aftur og bakið í 20 mínútur. Þá ætti hrökkbrauðið að vera tilbúið. Leyfið hrökkbrauðinu að kólna svolítið áður en þið berið það fram.
Sæl, þessar eru mjög girnilegar, eru 7 dl vatn ekki of mikið ?
ReplyDeletekv Bryndís