Tuesday, February 7, 2012

Nautalund og besta kartöflugratínið.



Nautalund 
Nautalund ca. 200 - 250 g á mann
smjör 
salt og pipar

Aðferð:

Hitið smjör á pönnu við vægan hita, sáldrið smá salti á pönnuna og setjið steikurnar á pönnuna og steikið í 2 - 3 mínútur á hvorri hlið. Saltið og piprið duglega á meðan. 

Hitið ofninn í 200°C. Setjið steikurnar á eldfast mót og inn í ofn í 12 - 14 mínútur. Þá er steikin medium/rare. Persónulega finnst mér hún best þannig. 

Meðlætið var mjög einfalt enda er steikin svo ótrúlega góð. Góð sósa, í raun hentar hvaða sósa sem er með steikinni. Ferskt salat, gratínerað spergilkál (spergilkál soðið í 7 mínútur og síðan sett í eldfast mót og rifinn ostur settur yfir, inn í ofn í 5 - 7 mínútur) Kartöflugratínið hennar mömmu er það besta sem ég fæ með steikum og ég verð að deila uppskriftinni með ykkur. 

 Kartöflugratínið hennar mömmu

1 kg. Kartöflur
1 Peli rjómi
1 dós niðursoðnir sveppir (líka hægt að smjörsteikja ferska sveppi, mér finnst þó sveppir í dós ljómandi góðir) Við notum sveppina og vökvann.
1 Kjúklingateningur
2 - 3 msk. Smjör
1 tsk. Salt
1 tsk. Pipar
1 - 2 msk. kjúklingakrydd

Kartöflurnar eru skornar smátt og öllu er blandað vel saman í stóru eldföstu móti. 

Inn í ofn við 180°C í 50 - 55 mínútur. 


 Með matnum drukkum við Montes Cabernet Sauvignon Carmenere. Kirsuberjarautt, fremur þurrt en afskaplega bragðmikið og gott. Hentaði mjög vel með nautalundinni.

xxx
Eva Laufey Kjaran

5 comments:

  1. Dreptu mig hvað þetta er girnilegt! Útpungun asap- nautalund!!

    ReplyDelete
  2. Við þurfum að elda saman stelpur! Jafnvel fyrir útpungun, við sjáum hvað setur.
    Það er kominn tími á dinnerdeit.

    xxx

    ReplyDelete
  3. Vá hvað þetta lítur vel út. Svo vel út að Litlir Bleikir Fíalr ætla mögulega að tjalda fyrir framan húsið þitt og vonast til að vera boðin í afganga svona einn daginn. Einn góða veðurdag.....mmmmmm....:-)

    ReplyDelete
  4. Mér þætti yndislegt að fá Bleika fíla í garðinn minn xxx Ég myndi alveg gefa þeim að borða.

    ReplyDelete