Sunday, June 10, 2012

Summertime

 Góð helgi að baki í sveitinni. Fórum í útskriftarveislu hjá frænda hans Hadda, hittum gott fólk, borðuðum góðan mat og drukkum vín. Det var så dejlig! Það er líka svo gaman að keyra um landið okkar, ég og Haddi höfum ákveðið að vera dugleg við að ferðast innanlands í sumar. Það er svo mikið fallegt að sjá og skoða. 

Það væri virkilega skemmtilegt ef ég gæti platað ykkur lesendur góðir ef þið hafið tíma til,  að deila með mér frá áhugaverðum og fallegum stöðum sem þið hafið heimsótt.
 Með hvaða stöðum mælið þið þegar túristarnir á Skaganum ætla að ferðast um landið? ;-)



 Fallegi blái hringurinn minn og jakkinn sem ég fékk frá Mareni minni 
Elsku maðurinn minn, svo sætur. 

Ég vona að þið hafið átt ljómandi góða helgi. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

3 comments:

  1. Þið eruð alltaf velkomin í Húsafellið :-) frí gisting í litla bústaðnum okkar :)

    ReplyDelete
  2. Mæli með að fara norður á Strandir :)

    ReplyDelete
  3. Skriðuklaustur fyrir austan, hádegishlaðborðið þar er of mikið gamaldags gourmet, krúttað fyrir allan peninginn ;)
    -B

    ReplyDelete