Monday, July 9, 2012

Magnolia Bakery


Í júlí þá fór ég til New York og kíkti meðal annars  í Magnolia Bakery. Dásamlegra bakarí hef ég ekki séð, allt svo fallegt og krúttlegt. Ég hefði geta eytt mörgum tímum þarna inni í smakk og dúllerí.
 Eins og þið sjáið á myndunum þá var ég með eindæmum vandræðalegur túristi, fyrir mér var þetta ábyggilega jafn merkilegt og þegar fólk fer upp í Empire state og tekur margar myndir. 

Kökuhimnaríki og ég bara varð að taka myndir til þess að deila með ykkur, jú líka svo ég gæti skoðað þær aftur og aftur. 

Mæli innilega með því að þið farið í þetta dásamlega bakarí og smakkið bakkelsið, mæli sérstaklega með banana búðingnum. Sá búðingur er undur! Ég keypti mér kökubókina frá þeim og hlakka til að prufa uppskriftirnar. Ég bakaði súkkulaðiköku um daginn í Magnoliu stíl.
 Kökur á mörgum hæðum heilla mig gífurlega og mér finnst þær extra fallegar. 
















 Súkkulaðikakan mín í Magnoliu stíl 

xxx

Eva Laufey Kjaran

4 comments:

  1. namm!!! þetta bakarí er guðdómlegt, þeir eru með útibú hjá mér í LA líka <3

    www.double-pizzazz.com

    ReplyDelete
  2. Ó lord! Þetta bakarí fer á to-see listann fyrir næstu NY ferð :)

    ReplyDelete
  3. Váv! Ánægð með þig að hafa tekið vandræðalega túristann á þetta, ekkert smá gaman að sjá og sama og Dagný Björg sagði :)

    ReplyDelete
  4. Sigríður Dagbjört ÁsgeirsdóttirJuly 13, 2012 at 3:30 AM

    Guð minn góður ! Verð að fara í þetta bakarí.. slefaði yfir þessum myndum !
    Slefa reyndar yfir öllum myndunum hjá þér. Ótrúlega skemmtilegt blogg hjá þér:)

    ReplyDelete