Ég deildi þessari uppskrift með áhorfendum Stöðvar 2 í þættinum mínum Matargleði á síðasta ári, einhverra hluta vegna rataði uppskriftin ekki hingað inn og nú bætum við úr því. Það er svo sannarlega alltaf staður og stund fyrir gott lasagna og ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift. Gott grænmeti, pasta og góður ostur. Þurfum við nokkuð eitthvað meira? Ég þori að lofa ykkur að þið eigið eftir að elda uppskriftina aftur og aftur - hún er sáraeinföld og þið getið auðvitað notað það grænmetið sem þið eigið til í ísskápnum hverju sinni.
Grænmetislasagna með pestókartöflum
Grænmetislasagna
Rifinn Mozzarella ostur, magn eftir smekk
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu. Skerið grænmetið smátt og steikið við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til grænmetið er farið að mýkjast. Bætið pressuðum hvítlauk út pönnuna í lokin og steikið í smá stund. Gott er að setja smá klípu af smjöri.
- Bætið niðursoðnum tómötum, tómatmauki, ferskri basilíku, grænmetissoðinu á pönnuna og látið sjóða í 30 mínútur við vægan hita. Kryddið til með salti og pipar.
- Á meðan grænmetið mallar á pönnunni búið þið til hvítu sósuna en þið blandið saman kotasælu, sýrðum rjóma, 50 g af rifnum parmesan, salti og pipar. Blandið vel saman.
- Setjið grænmetisblöndu í botninn á eldföstu móti, því næst lasagnaplötur, hvítu sósuna, aftur grænmetisblönduna og endurtakið leikinn einu sinni til tvisvar.
- Dreifið vel af rifnum mozzarella osti yfir og nýrifnum parmesan.
- Bakið í ofni við 180°C í 40 – 45 mínútur.
Kartöflur
Aðferð:
- Sjóðið kartöflur með hýðinu, saltið vel.
- Maukið saman kasjúhnetur, basilíku, klettasalat, parmesan ost, ólífuolía, salt, pipar og sítrónusafa með töfrasprota eða matvinnsluvél.
- Þegar kartöflurnar eru tilbúnar þá hellið þið vatninu af þeim og blandið þeim saman við pestóið.
Njótið vel kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.
No comments:
Post a Comment