Saturday, January 7, 2012

Vanillubollakökur með dásamlegu karamellukremi.


Í gær þá bakaði ég vanillubollakökur og prufaði nýtt krem, sem er að mínu mati eitt það allra yndislegasta. Uppskrift af bollakökunum finnið þið hér 

Karamellukrem. 

400 gr. Karamellur 
6 dl. Rjómi

Ath! Það þarf að byrja að laga kremið deginum áður en við ætlum að nota það. 



 Ósköp einfalt. Setjum rjóma og karamellur í pott. Hitum við vægan hita og hrærum vel í, eftir nokkrar mínútur verður þetta orðið að dásamlegri sósu. (Það er náttúrlega súper að nota þessa sósu ofan á ís með ferskum ávöxtum, mmm) En það er önnur saga, nú einbeitum við okkur að kreminu. 

 Þessir herramenn sáu um að hræra og smakka. 


 Sjá hvað ég er rík! Vantaði að vísu elsta prinsinn, en hann verður með í bakstrinum næst.

 Er þetta ekki fallegt? 

Inn í ísskáp yfir nótt.

 Bollakökurnar tilbúnar að fara í ofninn. 

 Mmmm. 

 Þá er bara að skella þessu í hrærivélina í 3 - 4 mínútur. 


 Tilbúið!

 Bollakökurnar skreyttar og fínar. 

Smá dúllerí, ég bræddi fáeinar karamellur saman við rjóma ( 3-4 karamellur og 1/2 dl. Rjómi )og dreifði yfir kökurnar. Bara pínupons, setur fallegan svip á kökurnar. 


Þetta krem er algjörlega þess virði að prufa. 

Njótið


xxx

Eva Laufey Kjaran 

8 comments:

  1. mmm girnó
    hvar fær mann svona karamellur?

    ReplyDelete
  2. Í shell og í krónunni =) (Örugglega á fleiri stöðum en ég hef bara keypt þær þar)

    ReplyDelete
  3. Sæl og falleg síða, gott að fá innblástur fyrir eldhússtúss :)
    snilldar aðferð við að búa til karamellukrem, hef lengi spáð í því hvernig hægt er að gera þykkt karamellukrem. Hlakka til að prófa!

    kv. Valgerður

    ReplyDelete
  4. mmmmmmmmmm slef slef
    Heiða (EGS)

    ReplyDelete
  5. Hæhæ, æðislegt blogg.. :) en eru þetta svona karamellur úr nammibarnum eða er þetta einhver sérstök tegund..? :)

    ReplyDelete
  6. Já þetta eru karamellur úr nammibar =)

    xxx

    Eva

    ReplyDelete
  7. nú er ég pínu í ruglinu, hverju skellir þú í hrærivél í 3-4 mín?
    deiginu? kreminu?

    ReplyDelete