Wednesday, January 14, 2015

Besta súkkulaðikakan með klassísku smjörkremi





Ef það er eitthvað sem hægt er að treysta á, þá er það klassísk og dásamleg súkkulaðikaka með ljúffengu smjörkremi. Ég baka þessa köku að lágmarki einu sinni í mánuði. Það er fátt sem jafnast á við nýbakaða súkkulaðiköku með góðu kremi og ískaldri mjólk. Þessi súkkulaðikaka er án efa í miklu uppáhaldi hjá mér, þegar ég kom heim úr skólanum á mínum yngri árum var svo notalegt að finna kökuilminn taka á móti mér þegar að mamma var búin að baka. Þetta er þó ekki uppskriftin sem mamma var vön að baka en þetta er engu að síður þessi gamla og góða, dökkir súkkulaðibotnar með ljósu og silkimjúku smjörkremi. Ég notaði þessa uppskrift fyrir botnanna, en uppskriftin er bæði lygilega einföld og svakalega góð.

Ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift, njótið vel. 


Súkkulaðibotnar
  • 3 bollar Kornax hveiti
  • 2 bollar sykur
  • 3 egg       
  • 2 bollar AB mjólk
  • 1 bolli bragðlítil olía (ekki nota ólífuolíu)
  • 5-6 msk. Gott kakó
  • 2 tsk. Lyftiduft
  • 1 tsk. Matarsódi
  • 2 tsk. Vanillu exctract eða vanillusykur.

Aðferð: Hitið ofninn í 180°C (blástur). Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt. Smyrjið tvö lausbotna form og skiptið deiginu niður í formin. Bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan klár. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en þið setjið á þá krem.


Klassískt og ómótstæðilegt smjörkrem.
  • 370 g. Flórsykur
  • 220 g. Smjör
  • 4 msk. Gott kakó
  • 2 msk. Mjólk eða rjómi
  • 2 tsk. Vanilla extract eða vanillusykur
  • 1 msk. Uppáhellt kaffi

Aðferð: Þeytið saman smjör við stofuhita og flórsykur í svolitla stund, því næst fer annað hráefni og þeytið vel í nokkrar mínútur. Kremið verður silkimjúkt ef þið þeytið það í 4 – 5 mínútur. Því lengur því betra verður kremið, það er mín skoðun. Smyrjið kremi jafnt á milli botnanna og þekjið kökuna svo með þessu gómsæta kremi. Ég reif niður súkkulaði með ostaskera og notaði sem skraut, það kom vel út og það var ekki verra að fá litla súkkulaðibita með kökunni. 



xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

11 comments:

  1. This comment has been removed by a blog administrator.

    ReplyDelete
  2. Hildur HreinsdóttirApril 29, 2015 at 1:10 AM

    Sæl Eva. Þessa uppskrift ætla ég að prófa og ég vona að kakan mín muni þá loksins líta út eins og á myndinni þinni. Ég er yfirleitt ekki í vandræðum með kökuna sjálfa en guð má vita hvað ég er búin að prófa margar uppskriftir af smjörkremi og það verður aldrei eins og það á að vera. Það verður aldrei svona ljóst og "fluffy", heldur lítur það alltaf mjög vel út í skálinni en verður svo að engu þegar það kemur á kökuna og hverfur nánast. Ég er alveg að gefast upp á súkkulaðikökum með góðu kremi en nú ætla ég að gefa því eitt tækifæri enn, þína uppskrift.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Passarðu að setja kremið á þegar kaka hefur kólnað? Annars bráðnar kremið niður ofan á kökuni :D

      Delete
    2. Hræra kremið vel Hildur þá færðu það flott

      Delete
    3. Aldrei að setja krem á kökuna þegar hún er heit alltaf best að hræra smjörið,eggið (ég nota alltaf egg) og flórsykurinn vel saman og setja á kökuna þegar hún er vel kæld.

      Delete
  3. Hvernig olíu notar þú?

    ReplyDelete
  4. Hvaða kakó er 'gott kakó'?

    ReplyDelete
  5. This comment has been removed by the author.

    ReplyDelete
  6. Hvort er betra að vera með Ljóma eða Íslenskt smjör Eva? :)

    ReplyDelete