Fagurbleikur og bragðgóður boozt er fullkomin byrjun í góðu brönsboði. Á tyllidögum má svo fara alla leið og fylla drykkinn upp með kampavíni. Virkilega frískandi og góður drykkur sem tekur enga stund að búa til og allir elska.
Bleika dásemdin
- 1 bolli frosin jarðarber
- 1 bolli frosin hindber
- 1 bolli klakar
- 4-5 góðar matskeiðar af grísku jógúrti
- 1 banani
- Appelsínusafi, magn eftir smekk
- Smá skvetta af hunangi
Aðferð: Setjið allt í blandarann í 2-3 mínútur eða þar til drykkurinn er silkimjúkur. Berið strax fram og njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.
No comments:
Post a Comment