Sunday, February 8, 2015

Glútenfríar og ljúffengar rjómabollur með jarðarberjafyllingu



Það eru margir sem þola illa glútein og vilja sleppa því. Sjálf borða ég það, en mig langaði engu að síður að búa til glútenfríar bollur fyrir þá eða þær sem vilja sleppa glúteini. Ég notaði glútenfrítt mjöl frá Finax í bollurnar, persónulega finn ég engan mun á þeim sem innihalda ekki glútein og týpískum vatndeigsbollum. Það er eingöngu munur á áferðinni á deiginu þegar ég bý þær til, glútenfría mjölið er mjög fíngert, deigið verður því léttara í sér og þarf því örlítið meira magn af mjölinu. Að öðru leyti bragðast þetta eins og eru bollurnar sérstaklega góðar með gómsætri jarðaberjafyllingu.

 
 
Glútenfríar og ljúffengar rjómabollur með jarðarberjafyllingu
 
8 - 10 bollur



  • 100 g smjör
  • 2 dl vatn
  • 2 msk sykur (má sleppa)
  • 120 g Finax glútenfrítt mjöl
  • 3 stór Brúnegg (eða fjögur lítil)
Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í. )
  3. Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
  4. Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
  5. Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
  6. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.  
Jarðarberjafylling
  • 1 askja jarðarber ca. 8 - 10 stk.
  • 4 dl rjómi
  • 2 tsk flórsykur
Aðferð:
  1. Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
  2. Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin.
  3. Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.
  4. Setjið fyllinguna í sprautupoka og sprautið á bollurnar. Ég sáldraði flórsykri yfir bollurnar en það er að sjálfsögðu hægt að setja á þær glassúr. Bæði betra.
 




Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

4 comments:

  1. hvar fær maður finax mjöl blönduna?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Sesselja. Þú færð Finax mjölið í t.d. Hagkaup og Víði.

      Delete
  2. Ég var einmitt að gera samskonar bollur sem heppnuðust vel nema að það vantaði sykurinn í mína uppskrift og það er einmitt það sem ég hefði þurft að bæta við. Þessi fer í safnið og verður notuð næst ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ég setti 1 msk. af sykri og finnst það mátulegt :-)

      Delete