8 - 10 bollur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C. (blástur)
- Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.
- Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
- Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
- Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
- Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.
Tips! Mér finnst gott að slá eggin létt saman áður en bæti þeim saman við deigið.
Svona lítur deigið út þegar það er tilbúið, svolítið stíft viðkomu. Sprautið bollurnar á pappírsklædda ofnplötu eða notið tvær skeiðar til að móta bollurnar.
Ljúffengar fyllingar
Jarðarberjafylling
Klassísk og góð fylling sem fær mig til þess að fara aftur í tímann þegar ég var yngri og fékk pening hjá mömmu til þess að hlaupa út í bakarí og kaupa mér eina gómsæta bollu með dísætu bleiku kremi. Nostalgían í hámarki við hvern bita...
- 1 askja jarðarber (10 - 12 stk)
- 4 dl rjómi
- 2 tsk. flórsykur
Aðferð:
- Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
- Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
- Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.
Nutella - og bananarjómi
Þetta er fyllingin sem þið óskið að taki aldrei enda, hún er of góð til að vera sönn. (en þetta er engu að síður sönn saga)
- 4 dl rjómi
- 1 banani
- 3 msk. Nutella
Aðferð:
- Þeytið rjóma.
- Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
- Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.
Karamellufylling
Karamella er klassísk og hún er alltaf góð, það er ekki annað hægt en elska hana. Þessi fylling er algjört sælgæti og ég gæti vel trúað að hún eigi eftir að falla vel í kramið hjá börnum. Dísæt og dásamleg.
- 4 dl rjómi
Aðferð:
- Þeytið rjóma.
- Blandið karamellusósu saman við rjómann með sleif, prófið að gera ykkar eigin karamellusósu. Það er miklu einfaldara en ykkur grunar. Hér er góð uppskrift. Passið að hún sé köld þegar þið blandið henni saman við rjómann.
- Í lokin blandið þið karamellukurli saman við rjómablönduna.
Njótið vel kæru lesendur.
xxx
Hlakka til að prófa þessar á bolludaginn! :-)
ReplyDeleteEin spurning, ertu með ofninn stilltan á blástur?
Sæl Carmen. Já ég er með ofninn á blástur, bæti því við í færslunni.
DeleteBestu kveðjur,
Eva Laufey
En ef maður er ekki með blástur í ofninum?
ReplyDeleteSæl Vala. Þá mæli ég með að baka þær við 200°C. Það er góð regla að fylgjast vel með bollunum, passa að opna ekki ofninn fyrstu 10 - 15 mín.
Delete110 Kornax hveiti, hversu mikið hveiti?
ReplyDelete