Sunnudagsbaksturinn
að þessu sinni er dásamleg Silvíu kaka en kakan þykir vera í eftirlæti hjá Silvíu,
drottningu Svíþjóðar. Mér finnst þessi kaka mjög ljúffeng og ég bakaði hana
ansi oft í fæðingarorlofinu mínu. Virkilega einföld og góð kaka sem ég mæli með
að þið prófið. Það er bæði hægt að baka þessa köku í hringlaga formi og í ofnskúffu, en þá er ágætt að tvöfalda uppskriftina.
Silvíu kaka
3 egg
3 dl sykur
1,5 dl kalt
vatn
3 tsk
lyftiduft
3 dl Kornax
hveiti
Glassúr
100 g smjör
1, 5 dl flórsykur
2
eggjarauður
2 tsk
vanillusykur
Kókosmjöl
til skreytinga.
Aðferð:
Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Sigtið hveitið
og lyftiduftið saman við. Í lokin bætið þið vanillu og vatni við og hrærið í 1
– 2 mínútu. Smyrjið hringlaga form og hellið deiginu í formið (það er hægt að
nota ofnskúffu en þá er ágætt að tvöfalda uppskriftina).
Bakið við
175°C í 20 – 22 mínútur.
Leyfið
kökunni að kólna þegar hún er komin út úr ofninum og útbúið glassúr á meðan.
Bræðið
smjör og bætið eggjarauðum, sykri og vanillusykri saman við og leyfið þessu að
malla í smá stund. Hrærið vel í kreminu, þegar það er orðið þykkt og fínt þá er
það tilbúið.
Dreifið
kreminu yfir kökuna og skreytið með kókosmjöli. Þetta er klárlega kakan sem þið
eigið eftir að baka aftur og aftur, hún er ekki bara einföld heldur er hún
virkilega gómsæt.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
No comments:
Post a Comment