Kjúklinga Enchiladas með Mexíkó osti
- Ólífuolía
- 1 rauðlaukur
- 1/2 rautt chili
- 1 rauð paprika
- 1 græn paprika
- 2 hvítlauksrif
- salt og pipar
- 2 kjúklingabringur
- 1 dós niðursoðnir tómatar
- 1 msk tómatpúrra
- 1 mexíkóostur
- 1 dl vatn
- Kóríander
- Tortilla kökur
- Rifinn mozzarella
- Sýrður rjómi
- Salsa
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu, skerið niður grænmetið.
- Steikið laukinn í smá stund, bætið paprikum og chili út á pönnuna.
- Pressið hvítlauksrif og bætið þeim einnig út á pönnuna.
- Steikið kjúklingabringurnar á annarri pönnu eða eldið í ofni við 180°C í 20 mínútur. Kryddið bringurnar með kjúklingakryddi. Rífið bringurnar niður og bætið út á pönnuna.
- Hellið tómötum og tómatmauki saman við.
- Kryddið til með salti, pipar og smátt söxuðum kóríander.
- Skerið mexíkó ostinn í litla bita eða rífið niður, setjið ostinn á pönnuna og hrærið.
- Bætið smávegis af vatni saman við og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur.
- Setjið tortillakökur í eldfast mót, fyllið þær með kjúklingablöndunni og rúllið upp.
- Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir, ég reif einnig niður eina stóra mozzarella kúlu yfir. Það kom mjög vel út.
- Bakið við 180°C í ca. 20 - 25 mínútur eða þar osturinn er gullinbrúnn.
- Berið fram með sýrðum rjóma, salsa, ferskum kóríander og gjarnan nachos flögum.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.
Bleika sósan sem er á síðustu myndinni, hvernig sósa er þetta?
ReplyDeleteBleika sósan sem er á síðustu myndinni, hvernig sósa er þetta?
ReplyDelete