Kjúklinganúðlur með wasabi sósu
- 800 g kjúklingakjöt (ég notað úrbeinuð læri)
- 2 dl sojasósa
- 2 dl sweet chili sósa
- 200 g núðlur
- 1 rautt chili
- 1 agúrka
- 1 rauð paprika
- 2 stilkar vorlaukur
- kóríander
- límóna
- salt og pipar
- Wasabi hnetur
Aðferð:
- Blandið sojasósu og sweet chili sósunni saman.
- Leggið kjúklingakjötið í eldfast mót og hellið sósunum yfir. Gott er að leyfa kjúklingnum að marinerast í 1 – 2 klst. Þess þarf ekki en kjúklingurinn verður bragðbetri. Kryddið til með salti og pipar.
- Eldið kjúklinginn við 180°C í 25 – 30 mínútur.
- Skerið agúrku, papriku og vorlauk mjög smátt.
- Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
- Skerið kjúklinginn í munnbita þegar hann er klár og blandið honum saman við núðlurnar og grænmetið. Það ætti að vera sósa í fatinu sem er frábær út á núðlurnar.
- Berið núðlurnar fram með kóríander, límónu, bragðmikilli wasabi sósu og hnetum.
Bragðmikil sósa með wasabi og límónu
- 1 dós sýrður rjómi 10% t.d. frá MS
- 3 – 4 msk majónes
- Wasabi paste, magn eftir smekk
- Safinn úr hálfri límónu
- 1 tsk hunang
- Salt og pipar
Aðferð:
- Blandið öllu saman í skál, best er að byrja að setja minna en meira af wasabi þar sem það er afar sterkt.
- Gott er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram. Það gildir með allar kaldar sósur.
Njótið vel.
Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.
No comments:
Post a Comment