Wednesday, November 18, 2015

Bragðmiklar kjúklinganúðlur sem allir ættu að prófa


Ég fékk svo hrikalega góðan kjúklinganúðlurétt hjá góðum vinum um daginn og fékk leyfi til þess að birta uppskriftina hér. Þetta er einn af þessum réttum sem þið hættið ekki að hugsa um og viljið helst sleika diskinn, hann er það góður. Ég held mikið upp á einfaldar, fljótlegar og bragðgóðar uppskriftir og það má með sanni segja að þetta sé ein af þeim. Bragmikill kjúklingur með fersku grænmeti, góðri sósu og stökkum wasabi hnetum... allt í einum bita! Ég er að segja ykkur það, þið verðið að prófa þennan rétt. 

Njótið vel.

Kjúklinganúðlur með wasabi sósu 

  • 800 g kjúklingakjöt (ég notað úrbeinuð læri)
  • 2 dl sojasósa
  • 2 dl sweet chili sósa
  • 200 g núðlur
  • 1 rautt chili
  • 1 agúrka
  • 1 rauð paprika
  • 2 stilkar vorlaukur
  • kóríander
  • límóna
  • salt og pipar 
  • Wasabi hnetur

Aðferð:
  1. Blandið sojasósu og sweet chili sósunni saman.
  2. Leggið kjúklingakjötið í eldfast mót og hellið sósunum yfir. Gott er að leyfa kjúklingnum að marinerast í 1 – 2 klst. Þess þarf ekki en kjúklingurinn verður bragðbetri. Kryddið til með salti og pipar. 
  3. Eldið kjúklinginn við 180°C í 25 – 30 mínútur.
  4. Skerið agúrku, papriku og vorlauk mjög smátt.
  5. Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  6. Skerið kjúklinginn í munnbita þegar hann er klár og blandið honum saman við núðlurnar og grænmetið. Það ætti að vera sósa í fatinu sem er frábær út á núðlurnar.
  7. Berið núðlurnar fram með kóríander, límónu, bragðmikilli wasabi sósu og hnetum.

Bragðmikil sósa með wasabi og límónu 

  • 1 dós sýrður rjómi 10% t.d. frá MS 
  • 3 – 4 msk majónes
  • Wasabi paste, magn eftir smekk
  • Safinn úr hálfri límónu
  • 1 tsk hunang
  • Salt og pipar

Aðferð:
  1. Blandið öllu saman í skál, best er að byrja að setja minna en meira af wasabi þar sem það er afar sterkt. Gott er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram. Það gildir með allar kaldar sósur.



Ég vona að þið eigið gott miðvikudagskvöld framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

No comments:

Post a Comment