Og hjartaði mitt bráðnaði gjörsamlega. Við byrjuðum helgina á pizzabakstri og þetta var í fyrsta sinn sem Ingibjörg Rósa hjálpaði mömmu sinni, þetta verður okkar fasti liður á föstudögum. Matargerðin verður milljón sinnum skemmtilegri þegar maður fær svona góða aðstoð og mér þótti svo ánægjulegt að sjá hvað litlan mín naut sín. Hún er að verða tveggja ára í júlí og allt í einu er hún orðin svo fullorðin, farin að tala mikið og skipa okkur foreldrum sínum fyrir hægri vinstri haha.
Í fyrsta pizzabakstrinum okkar saman þá bökuðum við einfalda pizzu sem allir á heimilinu geta borðað, margarita var á boðstólnum en móðirin fékk að lauma hráskinku á sinn hluta. Við elskum þessa pizzu og sérstaklega pizzabotninn, mjög einfaldur og allir geta bakað hann. Svo er hægt að bæta öllu því sem hugurinn girnist ofan á pizzuna, fer allt eftir smekk hvers og eins.
Föstudagspizzan að hætti Ingibjargar Rósu
Pizzadeig
- 2 1/2 dl volgt vatn
- 3 tsk þurrger
- 2 tsk hunang
- 2 msk ólífuolía
- 400 g Brauðhveiti frá KORNAX
- Einn skammtur pizzasósa, við notum oft hakkaða tómata eða tómatmauk
- Rifinn mozzarella ostur og pizzaostur í bland
- Pipar
- Hráskinka
- Gott salat
- Parmesan ostur
- Leysið gerið upp í volgu vatni og það er afar mikilvægt að gerið sé volgt.
- Bætið hunangi saman við og hrærið vel í.
- Þegar byrjar að freyða í skálinni er gerið klárt. Blandið olíu og hveitinu saman við í hrærivélaskál. Þið getið auðvitað hnoðað deigið í höndunum en mér finnst langbest að nota hnoðarann á hrærivélinni, það ferli tekur um það bil 4 - 6 mínútur. Deigið er tilbúið þegar það er orðið að kúlu og klístrast ekki við hrærivélaskálina.
- Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefa sig í klukkustund.
- Fletjið deigið út og smyrjið deigið með pizzasósu.
- Setjið það álegg sem þið viljið nota ofan á og bakið pizzuna við 220°C 7 - 10 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.
- Berið pizzuna gjarnan fram með hráskinku, góðu salati og nýrifnum parmesan osti.
Sjáið bara hvað hún er sæt og glöð!!
Best í heimi.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups
Sæl
ReplyDeleteVerð að spyrja hvar þú fékkst svona fínar svuntur á ykkur mæðgur ? Hef verið að leita að svona fínu handa mér og minni dóttur
Mbk,
Guðrún
Sæl og blessuð. Ég fékk þær í Litlu Garðbúðinni á Höfðabakka:)
Delete