Æðisleg ostaídýfa borin fram með Doritos flögum
Hráefni:
- 1 msk ólífuolía
- 1 laukur
- 1 rautt chili
- 1 rauð paprika
- 2 msk smátt saxað kóríander
- 1 poki rifinn ostur
- 125 g hreinn rjómaostur
- 450 g Cheddar ostur
- 1 - 2 dl rjómi (jafnvel meiri ef ykkur finnst ídýfan of þykk)
- ½ - 1 tsk cayenne pipar
- salt og pipar
- 1 poki Doritos
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu eða í potti.
- Saxið lauk, chili og papriku smátt og steikið upp úr olíunni í 1 – 2 mínútur eða þar til laukurinn verður glær.
- Rífið niður cheddar ostinn og bætið út í pottinn ásamt öðrum hráefnum.
- Leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum, bætið vökvanum saman við í nokkrum pörtum. Byrjið á því að setja minna en meira.
- Hrærið stöðugt í sósunni og smakkið ykkur til með salti, pipar og cayenne pipar.
- Þegar þið eruð ánægð með þykktina þá getið þið borið sósuna fram með góðu snakki.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin
í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.
Það gekk bara ekkert hjá mér að bræða mozarella ostinn, eða sko hann bráðnaði, en samlagaðist hinu ekki, þannig þetta varð bara ostaklumpur í rjómasósu. Var ég bara of óþolinmóð við þetta (fannst ég hita þetta heillengi)? Eða væri betra að nota annan ost með cheddarnum?
ReplyDeletekv. Ragna