Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi
Í síðasta þætti af Matargleði var sænsk matargerð í aðalhlutverki og ég eldaði meðal annars þessar ljúffengu kjötbollur með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum... virkilega gott.
Sænskar
kjötbollur
Smjör
eða ólífuolía
1 stór
laukur
2 msk smátt
söxuð steinselja
500 g
svínahakk
500 g
nautahakk
3 msk
sýrður rjómi
1 egg
3 – 4
msk brauðrasp
salt og
nýmalaður pipar
Aðferð:
- Hitið smjör eða ólífuolíu á pönnu, steikið laukinn í smá stund eða þar til hann fer að mýkjast. Saxið niður steinselju og bætið út á pönnuna.
- Blandið öllum hráefnum saman í skál og mótið litlar bollur úr hakkblöndunni.
- Steikið bollurnar á pönnu, snúið reglulega og leggið í eldfast mót. Klárið að elda bollurnar í ofni við 180°C í 10 – 15 mínútur.
- Berið bollurnar fram með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum.
4
brauðsneiðar
ólífuolía
salt og
pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C. Leggið brauðsneiðarnar á pappírsklædda ofnplötu og sáldrið ólífuolíu yfir brauðið, kryddið til með salti og pipar.
- Bakið í ofni við 200 C í nokkrar mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt og gullinbrúnt.
- Setjið brauðið í matvinnsluvél og maukið þar til það verður að fínu brauðraspi.
Brún og gómsæt sósa
300 ml rjómi eða matreiðslurjómi
1 dl kjúklingasoð
3 msk sýrður rjómi
1 tsk góð berjasulta
salt og pipar
1 msk smátt söxuð steinselja
sósuþykkjari, magn eftir smekk
Aðferð:
- Blandið öllum hráefnum saman í pott og náið upp suðu. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.
- Kryddið til með salti og pipar. Gott er að saxa niður ferska steinselju og sáldra yfir sósuna rétt í lokin.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 .
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt háefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.
No comments:
Post a Comment