Sunday, November 22, 2015

Mjúk súkkulaðikaka með fljótandi karamellusósu


Í gærkvöldi fór fram landssöfnun Samhjálpar til uppbyggingar á meðferðarheimilis í Hlaðgerðarkoti. Söfnunin gekk frábærlega og við söfnuðum rúmlega 80 milljónum sem er algjörlega frábært, það var svo gaman að fá að taka þátt í söfnuninni en við Ásgeir Erlendsson vorum í símaverinu með fullt af skemmtilegu fólki. Ég var svo sátt og sæl þegar ég vaknaði í morgun að ég varð að baka eina gómsæta köku. Mig langaði auðvitað í súkkulaðiköku og ég átti til ljúffenga karamellusósu sem passaði fullkomnlega með súkkulaðinu. Úr varð sænsk kladdkaka með þykkri karamellusósu. Þið ættuð að skella í þessa köku sem allra fyrst, lofa að þið eigið eftir að elska þessa. 


Mjúk súkkulaðikaka með fljótandi karamellusósu

  • 150 g smjör 
  • 2 Brúnegg 
  • 2 dl sykur 
  • 3 dl Kornax hveiti 
  • 1 tsk lyftiduft 
  • 2 tsk vanilla extract (eða dropar/sykur)
  • 4 msk kakó 
  • Ögn af salti 
  • 3 - 4 msk Dulce de leche karamellusósa 
Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C. 
  2. Bræðið smjör við vægan hita. 
  3. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. 
  4. Blandið þurrefnum saman og blandið varlega saman við eggjablönduna með sleif. 
  5. Hellið smjörinu og vanillu saman við og hrærið með sleif, saltið smávegis. 
  6. Smyrjið form og hellið deiginu í formið. 
  7. Setjið karamellusósuna yfir deigið.
  8. Bakið við 180°C í 18 - 20 mínútur, kakan á að vera svolítið blaut. 
  9. Kælið á meðan þið útbúið kremið. 

Súkkulaðikremi með karamellusósu 

  • 70 g smjör 
  • 120 g suðusúkkulaði
  • 2 msk síróp
  • smávegis af salti 
  • 2 msk Dulce de leche

Aðferð: 
  1. Brjótið súkkulaðið og bræðið saman við smjörið við vægan hita, ekki fara frá pottinum. Það er mjög auðvelt að brenna þessa góðu sósu. 
  2. Bætið sírópinu og karamellusósunni við í lokin, hrærið saman og hellið yfir kökuna. 
Berið kökuna fram með flórsykri og þeyttum rjóma, ég lofa ykkur því að kakan mun slá í gegn. 





Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Öll hráefnin sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 




2 comments:

  1. Líst vel á þessa en fyrir mig sem hef ekki aðgang að Hagkaup.. er þetta bara karmellu íssósa ?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ég mæli með að þú kaupir þykka karamellusósu, þær fást í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Íssósa er sennilega of þunn :)

      Delete