Saturday, December 5, 2015

Eggja- og beikonskálar sem allir elska



Um helgar er tilvalið að nostra svolítið við morgunmatinn og í morgun útbjó ég þessar einföldu og gómsætu eggja- og beikonskálar. Ég mun pottþétt bera þessi egg fram í næsta brönsboði en þau er ótrúlega góð, maður fær allt í einum bita. Stökkt beikon, stökkt brauð og silkimjúkt egg. Ef þið eigið ferskar kryddjurtir er tilvalið að nota þær með og ég átti ferskt timían sem ég sett ofan á eggja- og beikonskálarnar mínar. Það mætti segja að þetta væri lúxus byrjun á deginum og ég mæli svo sannarlega með að þið prófið. 


Himneskar eggja- og beikonskálar.

Uppskriftin miðast á við fjóra manns en það er ekki óvitlaust að tvöfalda skammtinn enda er þessi uppskrift mjög góð og ekki ólíklegt að fólk vilji tvær múffur. 


  • 4 beikonsneiðar
  • 4 brauðsneiðar
  • 4 Brúnegg
  • Salt og nýmalaður pipar 
  • Ferskar kryddjurtir eftir smekk t.d. timían eða steinselja
Aðferð: 
  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur) 
  2. Skerið skorpuna af brauðinu og mótið litlar skálar með brauðinu með því að þrýsta brauðinu á botninn á eldfasta múffu forminu. 
  3. Vefjið eina beikonsneið utan um hverja brauðsneið og setjið í eldfasta múffu formið. *Það er mjög mikilvægt að smyrja formið vel áður vegna þess að annars festist beikonið og eggið við formið.
  4. Brjótið eitt egg í hverja skál. 
  5. Kryddið til með salti, pipar og ferskum kryddjurtum.
  6. Bakið við 180°C í ca. 10 mínútur. Fylgist með eggjunum en þau eru tilbúin þegar eggin eru stíf. 
Berið fram og njótið með morgunkaffibollanum. 




Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

No comments:

Post a Comment