Friday, December 11, 2015

Ómótstæðilegur graflax með ljúffengri sósu




Eitt af því sem mér þykir algjörlega ómóstæðilegt og nauðsynlegt fyrir jólin er graflax með góðri sósu. Ég prófaði að búa til graflax í fyrsta skipti fyrir nokkrum dögum og það tókst mjög vel til, svo vel að ég ætla að deila uppskriftinni með ykkur. Þetta var miklu einfaldara en mig grunaði og smakkaðist auðvitað mikið betur en laxinn sem ég kaupi út í búð (æ þið vitið, manni finnst allt betra þegar maður er búin að hafa svolítið fyrir því). Ég bauð upp á laxinn í aðventuboði og hann kláraðist mjög fljótt sem er alltaf merki um að maturinn sé góður, ég mun þess vegna pottþétt gera graflax aftur fyrir jólin og hann er líka tilvalinn gjöf fyrir sælkerann í fjölskyldunni. 


Graflax

  • 1 laxaflak ca. 700 g. Beinlaust.
  • 200 g salt
  • 200 g púðursykur
  • 6 piparkorn
  • 2 msk vatn
  • 1 msk graflaxblanda frá Pottagöldrum
  • 4 – 5 msk dill
  • ½ sítróna
Aðferð: 
  1. Leggið laxflakið í mót. 
  2. Blandið saman salti, púðursykri, piparkornum og vatni í matvinnsluvél. Hellið síðan blöndunni yfir laxaflakið og nuddið vel inn í laxinn. 
  3. Stráið kryddinu jafnt yfir flakið og saxið dillið mjög smátt og stráið yfir. 
  4. Rífið börk af hálfri sítrónu yfir laxaflakið í lokin. 
  5. Setjið plastfilmu yfir mótið og látið eitthvað þungt ofan á t.d. minna mót og mjólkurfernur. 
  6. Geymið laxinn í kæli í 24 – 48 klst. Skolið flakið með köldu vatni og þerrið áður en þið berið fram með fersku dilli og góðri sósu.





Það er nauðsynlegt að hafa góða sósu með graflaxinum og hér fyrir neðan er uppskrift að graflaxsósu sem ég held mikið upp á. 

Graflaxsósa 

  • 1 dós sýrður rjómi 36%
  • 2 msk Dijon sinnep
  • 1 msk hlynsíróp
  • handfylli ferskt dill 
  • Salt og pipar
  • 1 msk sítrónusafi

Aðferð: 
  1. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Smakkið ykkur gjarnan til og bragðbætið að vild. 
  2. Best er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram.





Algjörlega ómótstæðilegt góðgæti fyrir jólin. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 



Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


No comments:

Post a Comment