Í síðasta þætti var sérstakt bolluþema í Matargleðinni og að sjálfsögðu voru vatnsdeigsbollur með rjómafyllingu á boðstólnum. Ég elska þessar bollur og borða óhóflega mikið af þeim á bolludaginn, en ég meina hann kemur nú bara einu sinni á ári. Því ekki að taka forskot á sæluna um helgina og baka þessar ljúffengu bollur kæru vinir?
Vatnsdeigsbollur
10 - 12 bollur
- 100 g smjör
- 2 dl vatn
- 2 msk sykur
- 110 g hveiti
- 3 stór egg
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C. (blástur)
- Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.
- Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
- Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
- Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
- Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.
Nutella - og bananarjómi
Þetta er fyllingin sem þið óskið að taki aldrei enda, hún er of góð til að vera sönn. (en þetta er engu að síður sönn saga)
- 4 dl rjómi
- 1 banani
- 3 msk. Nutella
Aðferð:
- Þeytið rjóma.
- Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
- Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.
Jarðarberjafylling
Klassísk og góð fylling sem fær mig til þess að fara aftur í tímann þegar ég var yngri og fékk pening hjá mömmu til þess að hlaupa út í bakarí og kaupa mér eina gómsæta bollu með dísætu bleiku kremi. Nostalgían í hámarki við hvern bita...
- 1 askja jarðarber (10 - 12 stk)
- 4 dl rjómi
- 2 tsk. flórsykur
Aðferð:
- Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
- Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
- Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.
Ekki missa af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni sem eru notuð í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups.
Sæl, girnilegar bollur ertu til í að deila uppskriftinni af glassúrnum?
ReplyDeleteSæl og blessuð. Ég hitaði rjóma og hellti honum yfir súkkulaði (notaði suðusúkkalaði) leyfði súkkulaðinu að bráðna í rólegheitum, hrærið vel í. Kremið verður þykkt og flott. Gott að kæla áður en þið setjið kremið á bollurnar.
DeleteMeð bestu kveðju, Eva
Tek undir vinsaml.deildu uppskr. af súkkulaðiglassúrnum! Hef bakað ýmisleg úr þínum uppskriftum og líkar vel hversu auðveldar þær eru í farmkvæmd, og árangurinn er góður, takk fyrir það.
ReplyDeleteEn gaman að heyra, sjáðu aðferðinni hér að ofan. Mjög einfalt súkkulaðikrem ;)
DeleteMeð bestu kveðju, Eva
Hver eru ca hlutföllin hjá þér í glassúrnum?
ReplyDeleteEr ekkert lyftiduft í uppskriftinni?
ReplyDelete