Í kvöld var kökuklúbbur svo ég setti í eina skyrköku.
Uppskrift
1 og hálfur pakki af dökku LU kexi.
ca. 200 gr. smjör
Kexið er vel mulið og smjörið er brætt og síðan bætt saman við. Tekur smá stund að mylja kexið, en það tekst að lokum :)
Ég byrjaði á því að þrýsta þessu vel í formið og setti í frysti um það bil 30 mín.
1/2 líter rjómi
1 stór dós af vanillu skyri og ein lítil. (Kea-skyr vanillu)
1x vanillustöng
1 tsk. vanilludropar
Rjóminn er þeyttur sér og ég þeyti skyrið örlítið sér., ég setti korn úr einni vanillustöng saman við skyrið og pínu vanilludropa. (ég vil hafa mína köku vel vanilluaða)
Síðan er rjómanum og skyrinu blandað varlega saman.
Þegar að kex-formið er komið úr frysti þá lætur maður blönduna varlega ofan í formið og inn í ísskáp í 3-4 klst.
Berjablandan. Hún er nú ansi einföld. Helst hefði ég viljað fersk ber en ég þræddi búðir bæjarins og þau voru ekki að finna nema bláberin.
En ég notaði einn poka af berjablöndu, frosin ber.
Hitaði pott með pínu smjeri bara rétt til þess að gylla berin og þar næst bætti ég einni vanillustöng saman við og var þá búin að skafa fræin og bæta þeim saman við sömuleiðis. Svo bætti ég við 2 tsk af sykri. Smakkaði mig svo bara áfram þar til ég var orðin sátt og sæl með blönduna.
Blandan sett ofan á skyrkökuna og fersk bláber í lokin. Svo hitaði ég hvítt súkkulaði og hellti smá yfir. Setti nokkrar línur af hvítu súkkulaði á bökunarpappír inn í ísskáp í nokkrar mín sem ég notaði síðan sem fallegt skraut. Líka ansi bragðgott :)
Mikil ósköp ætla ég að vera lengi að skrifa eina uppskrift. Ég er mjög líklega að flækja málin. En kakan var góð og það er nú fyrir öllu.
Njótið!
Ó lord! Er með vatn í munninum :)
ReplyDeleteÁ eftir að prófa þessa einhverntíman!
Kveðja Sólrún Perla
Þessi er geggjað góð, á pottþétt eftir að gera hana aftur!
ReplyDeleteSæl. Hvernig LU kex er þetta? Ertu að nota Bastogne með kanilbragðinu?
ReplyDeleteSæl Eva, langar svakalega að skella í þessa til að hafa með kvöldkaffinu og landsleiknum í kvöld.
ReplyDeleteEr ekki alveg sú besta í bakstrinum og vægast sagt smá brussa :)
Hvernig nærðu að gera botnin svona fína, hingað til hef ég alltaf gert skyrköku í fati en æi það er ekki eins fínt og flott. Ertu með nokkur lög af matarfilmu í botninum og hvað svo ? :)
Sæl Björk. Nei, ég hef bara verið með eitt lag af matarfilmu og það hefur gengið hingað til. Prófaðu að setja botninn í frystinn í smá stund, á meðan að þú gerir fyllinguna. Þá ætti hann að harðna algjörlega. Gangi þér vel. Þú átt eftir að rúlla upp bakstrinum ;)
DeleteÉg er svipuð og Björk en langar mikið að skella í ostaköku í afmæli dóttir minnar. Hvernig form notar þú og hvernig nærðu botninum upp úr? Bkv
ReplyDeleteSæl Freyja. Ég nota lausbotna form, það er mjög þægilegt þegar maður ætlar að ná kökunni upp úr forminu.
DeleteBestu kveðjur
Eva
Hæ hæ - þetta Lu kex er það með kanil- og karamellubragðinu?
ReplyDelete