Monday, April 30, 2012

Ljómandi fín menning á Akranesi.



Þegar að ég kom heim eftir próf í dag þá henti ég mér í kjól.  Mikið sem það er gaman að fara í kjól og að punta sig í prófatíð.   


Ég fór í kjól vegna þess að ég fór í leikhús með ömmu minni, afa mínum, bróður mínum og kærustu hans á söngleikinn Blóðbræður sem sýndur er þessa daganna í Bíóhöllinni Akranesi. 

Vá Þetta leikrit er frábært, leikararnir eru hver öðrum betri og ótrúlega vel að þessu staðið.
Það er greinilegt að Flokkurinn á Akranesi er í miklum blóma og hlakka ég til þess að fylgjast með þeim í framtíðinni. Akranes er stútfullur af hæfileikaríku fólki, svo mikið er víst.
Til hamingju öll með frábæra sýningu. 

Hvet ykkur öll sem eitt til þess að mæta á sýninguna og hvet ykkur auðvitað til þess að taka þátt í leiknum í færslunni hér fyrir neðan. Þið eigið möguleika á því að vinna gjafabréf fyrir tvo í þriggja rétta máltíð á Galító og í leikhús á Blóðbræður.





Ég tók eftir einu ansi skemmtilegu í dag, fyrir ári síðan voru heimsóknir á bloggið yfir apríl mánuð 2234 en nú ári seinna eru heimsóknir yfir apríl mánuð 51.500 sem gleður mig svakalega mikið. Mig langar til þess að þakka ykkur fyrir að nenna að fylgjast með þessu áhugamáli mínu. Met þess mikils. :-)

Ég vona að þið eigið ljúfa viku framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran


4 comments:

  1. Sæl Eva Laufey
    Finnst bloggið þitt alveg frábært, orðinn fastur liður á bloggrúntinum mínum.
    Takk fyrir mig
    Kv Kolbrún

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk fyrir það Kolbrún. Mikið er ég ánægð að heyra það.

      Bestu kveðjur,

      Eva Laufey

      Delete
  2. Hæ!

    Var að detta inn á bloggið þitt og það er æði, ekkert smá girnilegt allt hjá þér :)

    x
    www.shades-of-style.com

    ReplyDelete
    Replies
    1. Hæ Alexsandra. Takk fyrir það og mikið er þitt blogg skemmtilegt. Ótrúlega gaman að finna ný skemmtileg blogg til þess að skoða.

      Bestu kveðjur,

      Eva Laufey

      Delete