Tuesday, April 10, 2012

Grænt pestó


Mér finnst pestó alltaf svakalega gott. Mér finnst pestó gott með kjúkling, pasta, fisk og sérlega gott með brauði. 
Hægt að nota það með svo mörgu. Sérlega núna eftir páskana, þá þrái ég eitthvað létt og gott. Búin að borða of mikið af kjöti og þungum máltíðum. 

Hér kemur uppskrift að grænu pestó. 

85 g  Furuhnetur
1 Búnt basilíka
150 g. Parmesan ostur, rifinn
1 Hvítlauksgeirar
1 dl ólífuolía
salt og pipar ftir smekk

Setjið allt í matvinnsluvél, smakkið ykkur til og frá með salt og pipar. 

Einfaldara verður það ekki. Sérlega gott pestó sem á alltaf vel við. 













xxx

Eva Laufey Kjaran

2 comments:

  1. Hvað geymist þetta lengi í kæli ? :)

    ReplyDelete
  2. Ég geri oft svona pestó í vinnunni rosalega svipað, geymist alveg í 2-3 vikur myndi ég segja þó svo að ég sé alltaf að opna dolluna, ef ég ætti að skjóta á eitthvað, olían heldur þessu mjög lengi

    ReplyDelete