Tuesday, August 28, 2012

Bláberja bollakökur




Um síðustu helgi þá fór ég ásamt ömmu minni að tína bláber. Mikið sem það var nú huggulegt að sitja úti í náttúrunni að tína blessuð berin, ég náði að fylla nokkrar dósir en ég stefni á að fara einu sinni enn, maður fær víst aldrei nóg af bláberjum.  Bláberja bollakökur eru í sérlegu uppáhaldi hjá mér og finnst mér gaman að prufa mig áfram með þessar kökur, þessi uppskrift er býsna góð að mínu mati. Það er mikið af bláberjum í henni og það þykir mér ansi gott.

Mér finnst bláberja bollakökur betri með engu kremi, ég vil heldur hafa þær svolítið grófar með smá haframjölsblöndu ofan á.  Þið getið auðvitað minnkað sykurmagnið, notað spelt í staðinn fyrir hveiti og haft þær í hollari kantinum. Þá eruð þið komin með ágætis morgunverðarbollakökur.

Ég mæli svo sannarlega með því að þið skellið ykkur út í náttúruna og tínið ber. (og notið þau auðvitað í baksturinn ;)



Bláberjabollakökur

u.þ.b. 12 – 14 stk.

8 msk smjör, ósaltað og brætt
2 egg
150 ml mjólk
300 g hveiti
120 g sykur
1 vanilla extract eða vanillusykur
2 tsk lyftiduft
2 – 2 ½ bolli af dásamlegum bláberjum

Hitið ofninn í 180°


1.) Pískið smjör, egg og mjólk saman í skál. 

2.) Sækið aðra skál og sigtið þurrefnin saman, bætið því næst eggjablöndunni við hveitiblönduna og blandið þessu vel saman. (Ef ykkur finnst deigið of þykkt þá bætið þið smá mjólk saman við)
3.)Að lokum bætið þið vanilla extractinu og bláberjunum saman við, blandið því rólega saman við. 

4.) Haframjölsblanda

50 g hveiti
35 g smjör
25 g haframjöl
30 g púðursykur

Setjið allt saman í skál og blandið þessu vel saman með höndunum, þar til þetta verður að fíngerðu deigi

5.) Skiptið deiginu jafnt á milli í lítil pappírform og stráið smá haframjölsblöndu yfir kökurnar.  Ég klippti bökunarpappír í litla bita og notaði sem form að þessu sinni. 

Bakið við 180°C í 25 – 30 mínútur. 

Ljúffengar og fallegar







Lúxus kaffitími. 

Ég vona að þið njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran

9 comments:

  1. Æðislegt! Er með þær í ofninum as we speak!

    ReplyDelete
  2. Nammmii, var einmitt að leita mér að góðri uppskrift af bláberja muffins og rakst þá á síðuna þína. Klárlega síða sem ég mun fylgjast vel með í framtíðinni!:)

    ReplyDelete
  3. namm..ætla að prófa þessar!
    en nú spyr ég eins og kjáni-hvernig í ósköpunum geriru svona pappírsform?
    -Adda

    ReplyDelete
    Replies
    1. Mæli svo sannarlega með þessum bollakökum Adda. Og þú ert sko alls ekki kjáni, ég klippi niður bökunarpappír og læt ofan í járn-bollakökuformið mitt.:)

      Delete
  4. Ædisleg uppskrift. Takk fyrir ad gera og deila. Átti ekki bláber, notadi bara rúsînur í stadinn og thær voru ædi :)

    ReplyDelete
  5. Þessi uppskrift er fáránlega einföld og hrikalega góð!

    ReplyDelete