Tuesday, September 27, 2011


Skóladagar. Það er svo sannarlega að koma október, tíminn flýgur. Dagarnir eru ansi langir.
 Fer út klukkan sjö á morgnana og er búin í skólanum um fimm - sexleytið. Svo heim, matur, hreyfing og lærdómur. Ef til vill smá tiltekt... en bara smá. 

Próf, verkefnaskil og mikill lestur = Október. Dásemd. 

Ég bakaði mér súkkulaðiköku í kvöld - ég var að pirrast yfir verkefni sem er pínu snúið. En hvað haldið þið? Góð súkkulaðikaka kemur skapinu í lag. 

Nú ætla ég að fá mér kaffibolla, já svona seint. Hér á þessu heimili er nóttin ung. Þarf að sigra þetta verkefni. 

xxx

1 comment:

  1. VÁ! Svakalega er skóladagurinn langur hjá þér. Vitlaust að gera í viðskiptafræðinni! Ekki er hann svona ALLA daga vikunnar? Trúi því að þú hafir þurft smá súkkulaði og sykur í kroppinn :)

    Þannig bara fjör framundan í lærdómi! Ég er í sama pakka hérna megin :) Nóg að gera í október - en samt ekki próf fyrr en í desember :)

    Good luck hon.

    Kærlig hilsen - Sólrún Perla.

    ReplyDelete