Saturday, October 22, 2011

Kjúklingasataysalat

Ég er svo hrifin af þessu kjúklingasalati, elsku Fríða vinkona bauð mér eitt sinn upp á þetta dýrindis salat og þá var ekki aftur snúið. Ást við fyrsta smakk. 
Einfalt, fljótlegt og bragðmikið.




 1 x Stór spínatpoki í botninn (ég setti líka nokkur rucola blöð sem ég átti inn í ísskáp) 

 Ég notaði þrjár kjúklingabringur, þetta salat sem ég lagaði núna er fyrir ca. 4 - 5 manns.
 Ég steikti bringurnar í nokkrar mín og bætti síðan 4-5 msk af satay sósu.
 Kryddað með salti og pipar vitaskuld. 

 Látið malla á pönnunni í góða stund við vægan hita. 

 Kirsuberjatómatar og avókadó. (Heil askja af tómötum og eitt avókadó)

Kúskús sem ég var búin að krydda með smá salt og pipar og ein tsk. af karrý 


 Semsé, uppröðun. 

Spínat 
Kúskús
Kjúklingur í Satay sósu
Kirsuberjatómatar
Avókadó
Heil krukka af fetaost. 

Mmmm. Ljómandi gott salat! 

xxx

12 comments:

  1. Ég á svipaða uppskrift, rosalega gott.

    ReplyDelete
  2. Kristrún GrétarsdóttirApril 11, 2012 at 12:48 PM

    Var að prufa þetta salat og það er algjört æði.Takk fyrir að deila með okkur þessum uppskriftum.

    ReplyDelete
  3. Svanhvít FriðriksdóttirAugust 25, 2012 at 5:40 AM

    Hvernig lítur þessi satay sósa út ?

    ReplyDelete
  4. hvernig satey sósu notaru ? þær eru svo misjafnar

    ReplyDelete
    Replies
    1. Hvaða tegund af satay sósu er vinsælust og bragðbest? Takk!

      Delete
  5. Hvaða satay sósu notaðiru ?

    ReplyDelete
  6. Það er mjög misjafnt hvaða sósu ég nota, úrvalið er ekkert mjög gott í búðunum að mér finnst. Kaupi þá sósu sem er til hverju sinni :)

    ReplyDelete
  7. Sæl, mjög girnilegt salat hjá þér! Þar sem ég hef ekki mikið verið með svona kuskus hvernig er það eldað? soðið eða hvað? Og er sama hvernig Kuskus þetta er? kv. Laufey

    ReplyDelete
  8. Mér finnst rosa gott að bæta rauðlauk og appelsínugulum Doritos flögum við þetta salat....mmmmm. Takk fyrir góðar uppskriftir :) Kv. Lilja

    ReplyDelete
  9. prófaði þetta, eitt af bestu kjúklingasalötum sem eg hef smakkað, kv. Rebekka

    ReplyDelete
  10. Er þetta best heitt eða er hægt að bera það fram kalt

    ReplyDelete