Ég veit fátt betra en nýbakaðar smákökur og ískalda mjólk, gerir líka lesturinn á kvöldin þeim mun skemmtilegri.
Hnetusmjör + möndlur + súkkulaðibitakökur. Ég á eftir að finna gott orð yfir þessa dásemd, þessar kökur voru ljúffengar og mæli ég hiklaust með því að þið prufið..
En hér kemur uppskriftin..
165 gr. Hveiti
1/2 tsk. Matarsódi
1/2 tsk. Salt
175 gr. Smjör við stofuhita
115 gr. Sykur
115 gr. Púðursykur
4 msk. Hnetusmjör (ég notaði gróft frá Sollu)
1. Egg
1. Tsk. Vanilludropar eða vanillusykur
150 gr. Súkkulaðidropar
50 gr. Hakkaðar möndlur
Byrjuð á því að stilla ofninn á 190°
Næsta skref er að blanda saman smjörinu, sykrinum og hnetusmjörinu í um það bil fjórar mín. Eftir fjórar mín bætum við einu eggi saman við og blöndum í fimm mín.
Fallegt. Súkkulaði & möndlur
Hveitinu, saltinu, vanilludropunum og matarsódanum er bætt saman við og blandað vel saman í nokkrar mín.
Síðast en ekki síst bætum við súkkulaðinu og möndlunum saman við með sleif..
Sjá hvað þær eru sætar.. inn í ofn í 8 - 10 mín við 190°C
Góð kvöldhressing Ég naut þess að borða þær með ískaldri mjólk.
Góða nótt kæru lesendur
xxx
No comments:
Post a Comment