Monday, October 24, 2011

24.10.11

Mánudagur enn á ný. Fallegt veður og góð vika að hefjast, mamman mín kemur heim í vikunni og það verður ó svo gott að komast í mömmuknús. Það jafnast ekkert á við það. 

Ég útbjó í gær mér til gamans like- síðu á facebook fyrir bloggið. Gaman að sjá hverjir fylgjast með blogginu og takk innilega fyrir að nenna að koma hingað og lesa. https://www.facebook.com/pages/evalaufeykjarancom/290343130980942 hér er slóðin ef þið viljið smella einu like eða svo. :) 

 Ég fæ oft svo mörg falleg skilaboð og það er gaman að það séu einhverjir sem hafa gaman af þessu. Allavega finnst mér þetta ótrúlega skemmtilegt. 


Á mánudögum þá þráir líkaminn eitthvað ferskt og gott eftir helgarsukkerí. Mér finnst mjög gott að fá mér hrökkbrauð í hádeginu og eiginlega bara hvenær sem er. 

Létt og gott í maga. 

Hugmynd að hádegismat. 

Hrökkbrauð
Kotasæla
Salsasósa

Salat: 
Rucola
Rauðlaukur
Paprika
Agúrka 
Salt & pipar. 

Þetta er dásemd. Hollt, ferskt og bragðmikið. 

Lövlí. 

Gleðilegan mánudag 

xxx

4 comments:

  1. þú ert yndisleg :) :*

    ReplyDelete
  2. Mikið er ég ánægð með bloggið þitt! Þú minnir mann á það hvað það er mikilvægt að vera hamingjusamur í eigin skinni, borða góðan mat og njóta þess og hreyfa sig skynsamlega og njóta þess - ekkert útlitsdýrkunarbull! Takk kærlega fyrir gott blogg, hlakka til að lesa meira :)

    ReplyDelete
  3. Þú ert yndislegust Oddný Björg.

    Takk fyrir að lesa bloggið og gaman að heyra að þú hafir gaman af. Já - það er sko mikilvægt að líða vel í eigin skinni. Ef maður gerir það ekki þá virkar ekkert sem skyldi í kringum mann.

    xxx

    ReplyDelete
  4. Vá flott bloggsíða, mikið er ég sátt að hafa dottið hingað inn:)
    Setti þig í linka svo héðan í frá verð ég fastagestur...
    -Svana

    ReplyDelete