Wednesday, January 29, 2014

Instagram myndir


 1. Hjá Danna á Senter í vetrarhressingu. 
2. Klúbbsamlokan á Snaps er gúrm, mæli með að þið prófið. 

 3. Já fleiri matarmyndir, laugardagshuggulegheit á kaffihúsi í miðbænum. 
4. Eldhúsið mitt í Vesturbænum

 5. Yfirheyrsla í Fréttablaðinu. Léttar og skemmtilegar spurningar. 
6. Ég fór á þorrablót Skagamanna um síðustu helgi og skemmti mér ótrúlega vel, með mér á myndinni er Aldís Birna ofurfagra svilkona mín. 

 Í dag eyddi ég deginum með blaðamönnum frá Jamie Oliver tímaritinu í Bretlandi. Við löbbuðum um Reykjavík og ég sýndi þeim marga dásamlega veitingastaði sem við erum svo heppin að eiga. Það var ekki leiðinlegt að monta sig af góða og fjölbreytta matnum okkar hér á Íslandi.

Ykkur er meira en velkomið að fylgjast með mér á Instagram, mér finnst voða gaman að setja inn myndir af lífinu já þá einna helst myndir af góðum mat. Finnið mig undir evalaufeykjaran

xxx

Eva Laufey K. Hermannsdóttir 

2 comments:

  1. sæl, takk fyrir spennandi blogg, getur þú sagt mér á hvaða kaffihúsi þú ert á mynd nr. 3
    3. Já fleiri matarmyndir, laugardagshuggulegheit á kaffihúsi í miðbænum.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Þetta er augljóslega á Café Mezzo í Lækjargötunni, í Iðuhúsinu, Vöfflustangirnar fást bara þar held ég alveg örugglega og þau eru búin að setja um þetta á síðuna hjá sér https://www.facebook.com/Cafe.Mezzo

      Delete