Pulled Pork í bbq sósu
- 700-800 g úrbeinaður svínahnakki
- 1 tsk paprikukrydd
- 1 tsk cumin krydd
- 1 tsk bezt á allt krydd
- Salt og pipar
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk ólífuolía
Aðferð:
- Kryddið kjötið með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan.
- Brúnið kjötið á öllum hliðum upp úr ólífuolíu í víðum potti sem má fara inn í ofn.
- Skerið niður einn lauk og bætið honum út í pottinn ásamt tveimur hvítlaukrifjum.
- Leyfið kjötinu að malla í pottinum við vægan hita á meðan þið útbúið bbq sósuna.
BBQ sósa
- 1 msk ólífuolía
- 1 laukur
- 1 ½ dl tómatasósa
- 1-2 msk balsamikgljái
- 1 msk hunang
- Salt og pipar
- 1 tsk paprikukrydd
- 1 tsk cumin krydd
Aðferð:
- Saxið niður laukinn og steikið upp úr olíunni í eina til tvær mínútur. Bætið því næst hinum hráefnunum saman við og leyfið sósunni að malla í smá stund.
- Hellið síðan sósunni yfir svínakjötið og setjið lokið á pottinn og inn í ofn við 110°C í 6-8 klst.
- Berið svínakjötið fram í góðu brauði, með salati og pikkluðum rauðlauk.
Pikklaður rauðlaukur
- 1 rauðlaukur
- 1 dl hvítvínsedik
- 1 msk sykur
Aðferð:
- Skerið rauðlauk í jafn stórar sneiðar, setjið í krukku eða skál og hellið hvítvínsediki og sykri saman við.
- Blandið vel saman og geymið í kæli í lágmark klukkstund.
Án ef minn uppáhalds skyndibiti!
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups
No comments:
Post a Comment