Í lokaþætti Matargleðinnar var sérstakt sítrónuþema (mögulega tileinkað Beyoncé). Ég bakaði meðal annars þessa æðislegu vanillu- og sítrónuköku sem er í miklu uppáhaldi. Mjög sumarleg og sæt - mæli með að þið prófið hana.
Vanillu-og sítrónukaka með ferskum berjum
- Bakstur
- Áætlaður tími frá byrjun til enda: 2 tímar
- Fyrir 8-10 einstaklinga
- 200 g smjör
- 200 g sykur
- 4 egg
- 300 g hveiti
- 2 tsk vanillusykur
- 2 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 5 msk ferskur sítrónusafi
- börkur af hálfri sítrónu
Aðferð:
- Stillið ofninn í 180°C (blástur)
- Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós.
- Bætjum eggjum saman við, einu í einu.
- Blandið þurrefnum saman í skál og bætið síðan við eggjablönduna, ásamt sítrónusafa og sítrónuberki.
- Hrærið deigið þar til það verður silkimjúkt.
- Skiptið deiginu niður í tvö smurð form og bakið við 180°C í 22-25 mínútur.
- Kælið botnanna mjög vel áður en þið setjið á þá krem!
Ljúffengt
sítrónusmjörkrem
- 250 g mjúkt smjör
- 500 g flórsykur
- 3 msk sítrónusafi
- 1 tsk sítrónubörkur, eða minna
- 1 msk rjómi
- 100 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Þeytið saman smjör og flórsykur í 2 – 3 mínútur.
- Bætið sítrónusafanum, sítrónuberki, rjóma og bræddu hvítu súkkulaði saman við og þeytið áfram í 4 – 5 mínútur. Því lengur sem þið þeytið kremið því léttara og betra verður það.
- Smyrjið kreminu á milli botnanna og skreytið með allskyns ferskum berjum. Sigtið gjarnan smá flórsykri yfir kökuna í lokin.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups
No comments:
Post a Comment