Tuesday, June 28, 2011

Banana og haframjöls múffur

  • 3 dl. Sykur
  • 200 gr. Smjör
  • 4. Egg
  • 3 dl. Hveiti
  • 1,5 tsk. Lyftiduft
  • 2 dl. Haframjöl
  • Bananar
  • 2 dl. Rjómi
  • 2 msk. Vanillu extract ( eða 3 msk. vanilludropar)


Þeytið smjör og sykur saman , bætið síðan við einu og einu eggi og þeytið vel í nokkrar mín.

Bætið síðan við þurrefnum, bananastöppu og rjómanum og blandið varlega saman við í nokkrar mín. Rjóminn og vanilla extract fara síðast saman við.


Hér eru krúttin komin í sætu múffuformin

Bakist við 200° í 10 - 15 mín.



  • Krem

  • 60 gr.  Smjör
  • 5dl. Flórsykur
  • 1 msk. Mjólk
  • 100 gr. Philadelphia rjómaostur
  • 2 tsk. Vanilla extract (eða 3 tsk. vanilludropar)
  • Öllu blandað saman í nokkrar mín, mér finnst betra að kæla kremið aðeins í ísskáp áður en ég nota það. 


Mér finnst þessi matarlits-tegund ansi góð.
Ég átti ekki mikið af kökuskrauti þannig ég ákvað að prufa eitt, lét sykur í poka og lét einn dropa af gulum matarlit saman við. Hristi vel í pokanum og voila - kökuskraut komið!


Þessi múffa er djúsí og smakkast dásamlega - mæli með því að þið prufið þessa.

xxx Eva

3 comments:

  1. Þú ert snilli, hlakka til að prófa að baka svona ;)
    Malla

    ReplyDelete
  2. hrikalega ertu myndarleg Eva ;)
    Unnur

    ReplyDelete
  3. 2 msk. Vanillu extract ( eða 3 msk. vanilludropar)
    Eiga virkilega að vera 3 MSK vanilludropar?

    kv.
    Kristjana K

    ReplyDelete