Thursday, July 2, 2015

Pizzasnúðar með skinku og pepperoni


Í morgun bakaði ég í fyrsta skipti pizzasnúða, ég skil ekkert í mér afhverju ég hef ekki bakað þá fyrr. Pizzasnúðar minna mig á grunn-og framhaldsskólaárin mín, en þá fór ég ósjaldan út í bakarí og keypti mér pizzasnúð og kókómjólk. Það er auðvitað tilvalið að baka þessa snúða yfir sumartímann og nýta þá sem nesti í ferðalagið eða einfaldlega bara til að eiga heima fyrir. Ég setti helminginn af mínum snúðum í frysti, en þá get ég alltaf stolist í einn og einn og hitað, það er alls ekki síðra. Ég er í sumarfríi þessa dagana með henni Ingibjörgu Rósu minni og það var afar notalegt að byrja daginn á bakstri. Við mæðgurnar njótum þess svo í hádeginu að eiga nýbakaða snúða. 


Pizzasnúðar með skinku og pepperoni 

Þessi uppskrift er stór, ég skipti henni í tvennt bjó til snúða og skinkuhorn. Helmingur af þessari uppskrift gaf mér semsagt 20 meðalstóra pizzasnúða. 

  • 900 g Kornax hveiti (í rauðu pökkunum)
  • 40 g sykur
  • ½ tsk salt
  • 100 g smjör, brætt
  • 500 ml mjólk
  • 1 pakki þurrger (12 g)


Fylling :

  • 1 bréf skinka
  • 1 bréf pepperoni
  • pizzasósa, magn eftir smekk
  • rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk
  • oreganó krydd


Til að pensla yfir:

  • 1 egg
  • 2 msk mjólk
  • rifinn ostur
  • oreganó krydd



Aðferð:

  1. Hitið mjólk í potti, mjólkin á að vera volg.
  2. Vekjið gerið í mjólkinni, en það tekur um það bil fimm mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin.
  3. Bræðið smjör.
  4. Blandið öllu saman í skál og hnoðið deigið mjög vel, ég leyfi hnoðaranum á hrærivélinni minni að sjá um verkið en þá tekur það um bil bil fimm til sex mínútur.
  5. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að lyfta sér í rúmlega klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast og jafnvel þrefaldað stærð sína.
  6. Hitið ofninn í 180°C.
  7. Skiptið deiginu í tvennt, stráið hveiti á borðflöt og hnoðið létt.
  8. Fletjið deigið út með kökukefli.
  9. Smyrjið deigið með pizzasósu, skerið niður skinku og pepperoni og leggið yfir. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir og kryddið til með oreganó.
  10. Rúllið deiginu saman og skerið hverja rúllu í 18 – 20 bita.
  11. Leggið bitana beint á pappírsklædda ofnplötu eða í bollakökuform eins og ég gerði.
  12. Penslið snúðana með eggjablöndunni og sáldri rifnum mozzarella osti yfir og kryddið gjarnan með oreganó.
  13. Bakið snúðana við 180°C í 10 – 12 mínútur eða þar til snúðarnir eru gullinbrúnir.




Ég fæ oft fyrirspurnir hvaðan þessar skálar eru en þær eru frá cupcompany












Mjög góðir snúðar, mæli með að þið prófið.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


No comments:

Post a Comment