Wednesday, October 3, 2012

BABYSHOWER




Ég og vinir mínir héldum babyshower fyrir vinkonu okkar í ágúst. Vinkona mín átti von á stúlku sem þýddi að bleikt þema réð ríkjum í veislunni eins og sjá má á þessum myndum. Babyshower eða gjafaveislur eru veislur sem haldnar eru til heiðurs tilvonandi mæðrum. Líkt og nafnið gefur til kynna þá er hugmyndin með slíkri veislu að móðirin tilvonandi sé böðuð í gjöfum. Fáar veislur eru eins skemmtilegar þar sem vinirnir leggja allir hönd á plóg til þess að undirbúa veislu fyrir vinkonu sem á von á sínu fyrsta barni. 

Mikil stemmning skapast og eftirvænting ríkir í vinahópnum eftir litla krílinu. Oftar en ekki snýst umræðan um taubleyjur, ungbarnasund og það sem viðkemur barninu og vinkonur skipast á ýmsum sniðugum ráðum. 

Litlar samlokur 

Það er nauðsyn að bjóða upp á brauðmeti sem er ekki sætt með öllum hinum sætu kræsingunum. Litlar samlokur henta svo sannarlega vel í veislur. Þær eru ansi fallegar og sérlega bragðgóðar. 
Hér eru tvær hugmyndir að fyllingum í litlar samlokur. Notið gott samlokubrauð, helst alveg hvítt. Leggið brauðsneiðar saman með fyllingu á milli og skerið skorpuna utan af, skerið samlokurnar í fjóra bita í kross. 

Fylling 1: Camenbert, klettakál, rautt pestó og kirsuberjatómatar.

Fylling 2: Hunangsskinka, ostur, dijon-sinnep, klettakál og rjómaostur.

Þessir skór eru svo ótrúlega krúttlegir. 

Bleikt límonaði

Ansi svalandi, stelpulegur og skemmtilegur drykkur sem hentar vel sem fordrykkur. 

1/2 l vatn
1 dl sítrónusafi
1/2 l trönuberjasafi
1-2 msk. agave síróp
1/4 l rauður kristall plús

Blandið öllu nema kristal vel saman, hrærið vel í og setjið í könnu. Hellið blöndunni í glös og fyllið upp með kristal. Fallegur og ljómandi góður drykkur. 


Bleikur draumur 

Þar sem það var nú lítil stelpa á leiðinni hjá vinkonu okkar þá var nú tilvalið að baka bleikan draum. Þessi kaka er reglulega góð með hindberjakremi á milli og hvítu súkkulaðikremi ofan á. Það er fallegt að skreyta kökuna með rósamynstri og sömuleiðis að dreifa ferskum rósablöðum á kökudiskinn. 

HÉR  sjáið þið hvernig þið gerið rósir á köku. 

Botnar: 

115 g smjör, við stofuhita
450 g sykur
435 g hveiti
1 tsk salt
3 tsk lyftiduft
3 1/2 dl ískalt vatn
2 tsk vanilla extract eða vanilludropar 
4 eggjahvítur
bleikur matarlitur

Hitið ofninn í 180°C. Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og loftkennd. Sigtið hveiti, salt og lyftiduft saman a.m.k. þrisvar sinnum, bætið saman við eggjablönduna og blandið vel saman. Bætið vatni, vanillu og bleikum matarlit út í. Stífþeytið eggjahvítur og blandið þeim síðan varlega saman við deigið með sleikju þar til deigið verður samfellt og kekkjalaust. Smyrjið tvö kökuform, skiptið deiginu á milli þeirra og jafnið það út. Bakið botnana í 30-35 mínútur. Takið formin út úr ofninum og látið þá kólna dálítið áður en þeim er hvolft á bökunargrind. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en fylling og krem er sett á þá. 

Hindberjakrem á milli 

4 dl rjómi 
1 msk flórsykur
100 g hindber

Þeytið rjóma og bætið flórsykri saman við í lokin, merjið berin saman með gaffli og bætið maukinu rólega saman við rjómann með sleikju. Smyrjið kreminu á milli botnanna. 

Hvítt súkkulaðikrem. Uppskrift finnið þið HÉR þið þurfið að tvöfalda uppskriftina til þess að skreyta bleika drauminn. Það þarf svolítið mikið krem á þessa dásemd. 

Kakan er svo sannarlega augnyndi og bragðast ansi vel. Hún er sérlega góð með þeyttum rjóma.


Litlu atriðin skipta nú miklu máli. 

Kökupinnar 

Kökupinnar eru algjör augnyndi og henta bæði sem borðskraut og veitingar. 

1 ljós kökubotn
4 msk. vanillubúðingur, einnig má nota venjulegt kökukrem
150 g hvítt súkkulaði, brætt við mjög vægan hita yfir vatnsbaði 
kökupinnar
matarlitur
skraut eftir smekk

Tætið kökubotn niður í skál og bætið vanillubúðingi saman við. Það getur verið að þið þurfið meiri búðing eða krem, notið eins mikið af búðingnum og þarf til að búa til þykka blöndu. Mótið litlar kúlur úr blöndunni þegar hún er orðin hæfilega þykk, takið kúfaða teskeið af blöndunni og mótið fallega kúlu úr því. 

Raðið kúlunum á disk. Bræðið svolítið af súkkulaði, bara nokkur grömm og dýfið toppnum á pinnunum ofan í, stingið þeim svo inn í kúlurnar. 

Geymið kökupinnana í frysti í ca. 15 mínútur. Hitið súkkulaði yfir vatnsbaði á meðan, hjúpið svo kúlurnar með bræddu súkkulaði og skreytið eftir smekk. Að þessu sinni var bleikum matarlit bætt við hvíta súkkulaðið þar sem bleikt þema réð ríkjum. 

Hekla og Edit, glæsilegar mæðgur. 


Fríða hélt á Rúrik  sem er yngsti prinsinn í hópnum á meðan Hekla steig sín fyrstu skref. 


Þessi krútt eru svo dásamleg. Elsku Hekla og Rúrik minn á spjallinu. 

Einlæg, falleg og öðruvísi veisla. Sterk hefð er fyrir veislum af þessu tagi í Bandaríkjunum og við hér á landi ættum að taka Kanann til fyrirmyndar. Virkilega skemmtilegt. 

Hvet ykkur eindregið til þess að halda babyshower ef það er von á kríli í vinahópnum. Svo hvet ég ykkur auðvitað til þess að prufa uppskriftirnar sem eru hér fyrir ofan, hvort sem þið haldið babyshower eður ei. Það er alltaf tilefni fyrir góðar kökur og allskyns góðgæti. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

17 comments:

  1. Ástrós JóhannesdóttirOctober 3, 2012 at 1:37 PM

    Ég og mamma elskum að skoða síðuna þína, þvílíkir hæfileikar sem þú hefur :) Geggjað

    ReplyDelete
    Replies
    1. Mikil ósköp sem mér þykir vænt um að heyra það Ástrós. Takk fyrir að skoða síðuna =)

      Delete
  2. Ég hreinlega elska síðuna þina, búin að prófa fullt af uppskriftum og hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum. Frábær síða.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk fyrir það kæra Þóra og mikið er gaman að heyra að þú hefur prófað uppskriftir sem eru hér á síðunni ;) Takk fyrir að skoða bloggið!

      Delete
  3. Gerði mexíkósku kjúklingasúpuna um helgina og hún var ÆÐISLEG! verður pottþétt elduð mun oftar í framtíðinni :) Alltaf gaman að skoða síðuna þína :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk fyrir það elsku Sylvía. Ég er líka ótrúlega hrifin af súpunni og er ansi oft með hana í matinn. Takk fyrir að skoða bloggið!

      Delete
  4. Takk fyrir frábæra síðu. Hef fylgst með þér lengi og haft gaman af. En mig langar svo að spyrja þig að einu, af hverju tekurðu bollakökurnar úr pappírsformunum áður en þú berð þær fram? Eða bakarðu þær kannski ekki í svoleiðis?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk fyrir það elsku Kristín Alma. Ég baka kökurnar í formum en þetta er einfaldlega bara vegna þess að mér finnst þær fallegri ekki í formum. Takk fyrir að skoða bloggið =)

      Delete
    2. Ok takk fyrir svarið. Hef oft velt þessu fyrir mér þegar ég sé girnilegar bollakökuuppskriftir hjá þér :)

      Delete
  5. Ég fíla þessa síðu í botn skohh, skoða hana alltaf og leik mér að prufa allskonar sem er á henni, prófaði t.d piparkökumöffinsið og það var ekkert smá gott =) endilega haltu áfram að vera svona dugleg og yndisleg

    Söknum þín endalaust
    kv Andri =)

    ReplyDelete
  6. Hvar getur maður keypt svona skraut? :) eins og þetta it's a girl?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Þetta er dúkur sem við klipptum niður í svona lítil skraut. Keyptum hann í búðinni í smáralind sem er með aðeins eitt verð, amerísk búð sem ég man ekki hvað heitir.

      Delete
  7. Hvar get ég keypt svona kökupinna ? :-)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Hæ :) ég er að gera þessa girnilegu köku, Bleikur draumur. Hvað meinaru með: "Sigtið hveiti, salt og lyftiduft saman a.m.k. þrisvar sinnum, bætið saman við eggjablönduna og blandið vel saman." Hvaða eggjablöndu á ég að blanda þessu saman við, eða meintiru sykur og smjör blönduna?

      Delete
  8. Er ofboðslega svekt. Er ií miðju kafi að gera þessa köku og þá er allt í einu talað um eggjablöndu en í uppskriftinni er bara talað um eggjahvítur. Vildi að þú hefðir svarað Spurningunni hér að ofan sem greinilega var send fyrir meir en ári síðan.

    ReplyDelete
  9. Ég er sammála þér Monica ég er að gera þetta og þurfti að henda deginu því ég sá allt í einu eggjablöndu og setti þá hvíturnar útí smjörið og sykurinn og hrærði því saman við hveitið. Svo sá ég að það eigi að stífþeyta eggjahvíturnar þannig að ég þurfti að henda öllu :(. Þannig að eiga þá eggjarauðurnar að fara útí sykur og smjörblönduna? Það stendur nefnilega ekkert um eggjarauður í uppskriftinni.

    ReplyDelete