Þennan fallega jólalega blómvönd fékk ég í gærkvöldi. Ég fékk til mín góða gesti í mat, bauð þeim upp á kjötsúpu og súkkulaðimús í dessert. Röltum svo yfir í Bíóhöllina á jólatónleika með Baggalút.
Mikil ósköp var gaman! Þeir voru algjörlega frábærir. Ég hlakka tl að fara á tónleika með þeim aftur.
Sumsé, virkilega huggulegt kvöld með góðu fólki.
Nú er helgin að ganga í garð, ég fór í síðasta tíma annarinnar í morgun og prófin byrja á mánudaginn.
Nú ætla ég að fá mér meira kaffi og halda áfram að læra.
Ég vona að þið eigið ljúfan föstudag kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Gangi þér vel í prófunum skvís :)
ReplyDeleteKveðja,
Sólrún Perla
Sömuleiðis elsku Sólrún :)
Delete