Thursday, November 15, 2012

Ofnbakaður plokkfiskur


Nú verður einhver að segja stopp, dagarnir fljúga svoleiðis áfram og ég næ varla að alveg að fylgja með. 
Jólaprófin fara að ganga í garð svo það eru nóg af verkefnum og lærdómi þessa dagana. 
Það er því sérstaklega mikilvægt að næra sál og líkama með góðum mat. 

Stundum fæ ég mikla löngun í plokkfisk, þann gamla góða sem ég fékk alltaf hjá mömmu. Ég prufaði í fyrsta sinn að elda plokkfisk um daginn og rétturinn tókst bara vel til að mínu mati. 



Ofnbakaður plokkfiskur 
Uppskrift miðast  við um það bil fjóra manns

600 g ýsa, roð- og beinlaus
400 g kartöflur
1 meðalstór laukur, smátt saxaður
2 msk vorlaukur, smátt saxaður
4 dl mjólk
1 dl fiskisoð
3/4 dl hveiti 
60 g smjör
1 1/2 tsk karrí
1/2 spergilkálshöfuð
rifinn ostur, magn eftir smekk
salt og pipar, svolítið vel af pipar

1. Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og skerið í bita. Skerið ýsuflökin í bita og sjóðið, látið suðuna koma upp og slökkvið síðan undir hellunni og látið standa á meðan sósan er útbúin, í um 10 mínútur. (Munið að geyma fiskisoðið)
2. Afhýðið og saxið lauk. Hitið smjör í potti og mýkjið laukinn.
3. Hveitinu er bætt við smjörið og laukinn, hrærið vel í á meðan. 4. Því næst bætið þið mjólkinni og fiskisoðinu saman við. Blandið þessu vel saman, kryddið til með salti, pipar og karrí. 
5. Skerið spergilkál í litla bita og sjóðið í saltvatni í 6 - 7 mínútur. 6. Þegar að sósan er orðin hæfilega þykk þá bætið þið spergilkálinu, kartöflum og fisknum saman við. Blandið þessu vel saman, kryddið til með salti og pipar.
 Smakkið ykkur til. Ef til vill þá viljið þið meiri pipar eða meiri karrí. Hvur veit! 
Setjið plokkfiskinn í eldfast mót og dreifið rifnum osti yfir réttinn. 
Bakið réttinn í ofni við 200°C í  6 - 8 mínútur, eða þar til rétturinn verður gullinbrúnn. 
Rúgbrauð með miklu smjöri og plokkfiskur haldast í hendur að mínu mati, það er ekki til betra meðlæti með plokkfisk heldur en gott rúgbrauð. Ísköld mjólk, ofnbakaður plokkfiskur og rúgbrauð.
 Svo sannarlega íslenskt og gott. 

Ég var ánægð með réttinn og hvet ykkur til þess að prufa hann. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

1 comment: