Iittala er í sérlega miklu uppáhaldi hjá mér. Ég tók þá ákvörðun fyrir þremur árum að byrja að safna glösum frá þeim. Ég heillaðist mjög af þeirra hönnun, hún er mjög stílhrein og falleg að mínu mati. Gæðavörur á fínu verði. Ég hef fengið tvö og tvö glös í jóla-og afmælisgjafir og nú loks get ég boðið nokkrum í drykk með þessum fallegu glösum.
Þessar vörur eru svo sannarlega tilvaldar í jólapakkann og hér eru nokkrar hugmyndir.
1. Essence karafla. Verð: 8900 kr. 2. Decanter karafla, ég á þessa og er alsæl með hana. Verð: 9800 kr.
3. Essence vínglös. Verð fyrir tvö glös um 4900 kr.
4. Kivi kertastjakar, fáanlegir í mörgum litum. Kemur mjög falleg birta frá þeim verð frá 2480 kr.
5. Ótrúlega fallegur Kastehelmi kökudiskur á fæti (31.5 cm) verð: 9850 kr. 6. Þessar skálar eru að mínu mati ótrúlega fallegar, koma í mörgum litum. Ég á nokkrar glærar og nota þær mjög mikið. Verð frá 3700 kr.
7. Aalto trébretti, stórt.Verð : 14.650
8. Aalto skálar, eru fáanlegar í mörgum litum. Ég nota mínar skálar mikið, undir sósur, nammi, nasl og meira til. Verð frá 3280 kr.
Ég er mjög ánægð með þá hluti sem ég á og hlakka til að eignast fleiri í komandi framtíð.
xxx
Eva Laufey Kjaran
ohh elska ittala ekki áttu þetta allt ? ;)
ReplyDeleteAuður
Alls ekki - en dreymir engu að síður um þetta allt. :)
DeleteOhh þessi kökudiskur er einmitt á óskalistanum mínum, og sömuleiðis kertastjakarnir sem eru í kivi stíl en með þessu mynstri líka. Svo fallegt!
ReplyDeleteTek undir með Öglu! Kastehelmi kökudiskurinn og kertastjakarnir eru bjútífúl (sem og allt hitt auðvitað)
ReplyDeleteYndislega fallegt bloggið þitt :)
ReplyDeletekv. Bogga
Þúsund þakkir fyrir það elsku Bogga.
Delete