Monday, January 7, 2013

Halló rútína.

Nú byrjar fjörið á ný, skólinn að byrja í dag og rútínan hefst hér með. Mikil ósköp sem það var ljúft í jólafríinu en ég tek fagnandi á móti smá rútínu. Það var erfitt að vakna í morgun og það er langur dagur framundan svo kaffi verður mín hjálparhönd í gegnum daginn. Það verður líklega auðveldara að vakna á morgun, ég er alla vega búin að lofa sjálfri mér að því að fara snemma að sofa í kvöld og vonandi stend ég við það loforð.

Ég var lengi á fótum í gær að skipuleggja janúarmánuð, mér líður alltaf svolítið betur að skipuleggja dagana mína. Þó ég fylgi planinu ekki alltaf 100% þá er gott að hafa það við höndina. Janúar verður annasamur mánuður og margt skemmtilegt framundan. 

Ég vona að þið eigið ljúfan dag kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran

1 comment:

  1. Það er möst að plana og krota endalaust. Love it! Væri ó svo mikið til í rútínu og ótrúlegt en satt.. skóla. Love <3

    ReplyDelete