Thursday, January 31, 2013

Twix bomba.

Ég hef alltaf verið afskaplega hrifin af kökum og það er fátt sem gleður mig meira en fallegar og góðar kökur. Kökuást mín byrjaði mjög snemma og eina minningin sem ég á af ættarmóti sem var haldið fyrir mörgum árum eru kökurnar, ég setti mér það markmið að smakka hverja einustu köku sem var á borðinu. Fyrirkomulagið var þannig að hver fjölskylda kom með eina köku og það fannst mér reglulega spennandi. Þetta var mjög fjölmennt ættarmót en ég naut þess að smakka allar kökurnar, á meðan hin börnin léku sér þá var ég að vinna í því að ná settu markmiði. Síðasta kakan sem kom á borðið var kívíkaka í einskonar hlaupi, ég man það sérstaklega vegna þess að ég hef varla borðað kíví síðan þá.

Ég sá svo ótrúlega girnilega uppskrift um daginn að Twix bombu.  Ég gat ekki staðist freistinguna og varð að prufa. Ein af mínum bestu vinkonum útskrifaðist um síðustu helgi og þá fannst mér kjörið tilefni til þess að baka þessa bombu. Twix bomban var svakalega góð og mæli innilega með að þið prufið þessa uppskrift kæru vinir og njótið. 


Twix bomba

100 g smjör, við stofuhita
40 g kakó
2 dl vatn
220 g sykur
2 egg
175 g hveiti
1/2 tsk. matarsódi
2 eggjahvítur
80 g sykur

Fylling:

4 dl rjómi
2 tsk flórsykur
3 stk twix (60 g hvert)

Aðferð:

Hitið ofninn í 160°C. Setjið kakó í litla skál og hellið sjóðandi vatni yfir, hrærið vel saman. Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós, bætið eggjum út í, einu og einu í senn. Blandið súkkulaðblöndu, hveiti og matarsóda út í og hrærið vel saman við. Leggið súkkulaðiblönduna til hliðar í smá stund. Stífþeytið eggjahvítur, bætið sykrinum saman við smám saman. 

Smyrjið tvö form (ég notaði 22 cm í þvermál) og skiptið súkkulaðideiginu á milli formana. Skiptið marensdeiginu ofan á og dreifið úr því. Bakið botnana í 35 - 40 mínútur, kælið þá vel áður en þið takið þá úr formunum. 

Þeytið rjóma og bætið flórsykrinum saman við, skiptið honum á milli botnana og leggið þá saman.  Setjið rjóma ofan á kökuna, saxið twix og dreifið yfir kökuna.

Ég vona að þið njótið vel kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

12 comments:

  1. þetta lítur mjög vel út!:) og þetta er frábært blogg hjá þér. lngaði að spyrja þig út í þessa uppskrift, er fylling ofan á kökunni líka, undir rjómanum?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Guðrún. Það er rjómifylling á milli botnana og svo ofan á kökunni. Algjör draumur í dós.

      Bestu kveðjur

      Eva Laufey

      Delete
  2. Var ekki lax í hlaupi á ættarmótinu líka?

    Þætti ráð ef að við myndum skipuleggja ættarmót þar sem að við myndum báðar vera á, gætum haft keppni í kökuáti?

    knús á þig bestust

    ReplyDelete
    Replies
    1. Hahah, ekki svo gott. Ég er rosalega til í annað ættarmót og keppni.

      Knús á þig Íris mín. :*

      Delete
  3. Hvernig setur þú klístaraðnn marengs-inn ofaná blauta súkkulaðideigið? Fer þetta ekki allt í klessu?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Hæhæ. Nei það gerir það ekki, ég notaði skeið og gerði þetta mjög varlega. Auðvitað blandast þetta pínulítið saman en þetta kom mjög vel út :)

      Bestu kveðjur

      Eva Laufey

      Delete
  4. Hvað gerir maður við kakóið sem búið er að hella heitu vatni yfir?
    Missti ég af einu skrefinu? :)
    Kveðja
    Kristín Sig.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Kristín. Nei þú misstir ekki af skrefi því ég gleymdi að setja það skref inn. En það er komið núna.

      Bestu kveðjur

      Eva Laufey

      Delete
  5. Æðisleg uppskrift! Botnarnir eru í ofninum núna. Viltu ekki taka fram í aðferðarlýsingunni að maður eigi að setja súkkulaðibotnablönduna Í smurðu kökuformin? Því það stendur bara hjá þér að maður eigi að setja til hliðar og svo eftir að marensinn er hrærður að setja það (marensinn) í formin. Ég fékk sjokk og hélt í smástund að hvíturnar ættu að koma á undan ;) Las áfram og skildist sem svo að ég gerði rétt þrátt fyrir að það hefði ekki komið fram.
    Takk fyrir frábært blogg... fyrsta skipti sem ég kommentera en alls ekki fyrsta skipti sem ég nota uppskrift hjá þér :D

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Begga :) Ég tek það fram í lýsingunni "Smyrjið tvö form (ég notaði 22 cm í þvermál) og skiptið súkkulaðideiginu á milli formana. Skiptið marensdeiginu ofan á og dreifið úr því. Bakið botnana í 35 - 40 mínútur, kælið þá vel áður en þið takið þá úr formunum. "

      Þúsund þakkir fyrir að skoða bloggið =)

      Delete
    2. Nú sá ég það! Hlýt að hafa verið blind eða bara farið svona líka rosa línuvillt þegar ég var að baka ;) Bomban var æðislega góð, passlega sæt líka sem ég kann virkilega vel að meta... þá hefur maður pláss fyrir allar hinar kökurnar á veisluborðinu!

      Delete
  6. Þessi er æðisleg, prófaði einu sinni og verður pottþétt prófuð aftur :) takk fyrir

    ReplyDelete