Sunday, May 5, 2013

Mjúkir kanilsnúðar með dásamlegum glassúr.


Mjúkir kanilsnúðar með glassúr lífga upp á tilveruna, ég segi það og skrifa. Það er eitthvað svo ómótstæðilega gott við þessa snúða og heimilið ilmar svo vel á meðan bakstrinum stendur. Ég tengi þessa snúða alltaf við eina skemmtilega minningu frá því að ég bjó í Noregi. Bakkelsið í Noregi er ekkert sérlega spennandi og norðmenn eru ekki mikið að dúllast í bakstri, þess vegna lá mér lífið á þegar mamma bakaði þessa gómsætu snúða að fá vinkonur mínar til þess að koma í smakk. Þegar  snúðarnir voru tilbúnir þá hljóp ég út í næsta hús og þar voru nokkrar vinkonur mínar sem ég bauð að koma með mér heim og smakka snúðana, þegar heim var komið sátu tveir yngri bræður mínir og þeirra vinir í essinu sínu með súkkulað út á kinn og aðeins tveir snúðar eftir. 

Ég man það svo sterkt því ég var svo aldeilis vonsvikin að geta ekki gefið öllum vinkonum  snúð, við skiptum þó þessum tveimur snúðum á milli okkar og þær voru sammála um að þetta væru bestu snúðar sem þær höfðu smakkað. Íslenska stúlkan var mjög montin og brosti út í eitt með súkkulaði út á kinn. 


Mjúkir kanilsnúðar með súkkulaðiglassúr. 

Deig:
700 - 800 g hveiti
100 g sykur
1 tsk vanillusykur
2, 5 tsk þurrger
250 ml mjólk
70 ml ljós olía
2 egg 
1 tsk salt

Fylling:
50 g sykur
100 g smjör
2 - 3 msk kanill. 

Aðferð: 

Öllum þurrefnum í deigið er blandað vel saman, bætið vökvanum saman og hnoðið vel. Breiðið röku viskustykki yfir skálina og látið deigið hefast í 30 - 40 mínútur. Á meðan að við bíðum eftir deiginu þá getum við útbúið fyllinguna. Hitið smjörið í potti, passið að bræða það ekki alveg og bætið sykrinum og kanil saman við.

Þegar deigið hefur hefað sig er það flatt út og smurt með fyllingunni. Deiginu er svo rúllað út og skorið í hæfilega marga snúða. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu, raðið snúðunum á pappírinn og leggið viskustykki yfir þá, rakt viskustykki. Leyfið þeim að standa í 30 mínútur áður en þeir fara inn í ofn. 

 Þessi mynd fangar mjög huggulega stemmningu, ég bakaði þessa snúða fyrr í vikunni og þá var grenjandi rigning úti en inni var mjög notalegt. 

Bakið snúðana við 170°C í 13 - 15 mínútur. 
 Á þessum tímapunkti er mjög erfitt að standast þá freistingu að fá sér einn snúð, ég stelst alltaf í einn áður en ég læt á þá glassúr. Það er eiginlega skylda að drekka ískalda mjólk með. 
 Súkkulaðiglassúr. 

100 g smjör, brætt
300 g flórsykur
1 tsk vanillusykur
50 g kakó
3 msk sterkt uppáhellt kaffi
1 msk mjólk

Þessu er öllu blandað vel saman og smurt á snúðana, ég sáldraði smá kókosmjöli yfir nokkra snúða og það kom mjög vel út. 




Ískalt mjólkurglas og nýbakaðir snúðar með glassúr, þessir snúðar voru ekki lengi að hverfa á nokkrum klukkustundum. Ég fékk 16 snúða úr uppskriftinni og þeir voru mjög ljúffengir. Þetta er mjög klassísk uppskrift og það eiga flestir uppskriftir sem hafa fylgt fjölskyldum í áraraðir, mér þykir svo vænt um svona uppskriftir sem fara með mann í smá ferðalag. Eins og t.d. þessir snúðar fara alltaf með mig í ferðalag í eldhúsið í krúttlega rauða húsinu sem við bjuggum í, þegar ég ákvað að það væri snjallræði að bjóða norðmönnum loksins upp á almennilegt bakkelsi. 

Ég vona að þið njótið dagsins og ég mæli auðvitað með að þið prófið þessa uppskrift sem er svo afskaplega einföld og góð. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

11 comments:

  1. Sæl,
    Takk fyrir þessa frábæru uppskrift!! stelpurnar mínar eru einmitt að suða um að baka og ég held að þetta sé bara góð hugmynd.

    Mig langar svo að vita, hvar fékkstu rörin? eru þau úr pappa?

    mbk. Árný

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Árný. Ég keypti þessu fallegu rör hjá Íslenzka Pappírsfélaginu.

      Bestu kveðjur,

      Eva Laufey

      Delete
  2. Æðislegt, lífgaði upp á mikinn þynnkudag. Takk fyrir.

    ReplyDelete
  3. Sæl,
    Ég var að prófa þessa uppskrift en eitthvað er ekki að virka, deigið hefaðist ekkert og var alveg svakalega blautt. Ég fór alveg nákvæmlega eftir uppskriftinni: Blandaði öllum þurrefnum saman og bætti svo mjólk, eggjum og olíu og hnoðaði (í vél) vel og vandlega. Hefurðu einhverja hugmynd um hvað getur hafa farið úrskeiðis?
    takk fyrir

    ReplyDelete
  4. Mjólkin þarf að vera vel volg, gæti það verði feillinn ?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl Anna, já það virðist hafa verið málið. Ég allavega prófaði aftur og hitaði mjólkina aðeins og bætti við þurrefnin (smá sykur og slatti hveiti) og þetta var ekkert mál. Frábær uppskrift! Takk fyrir

      Delete
    2. er sammála að deigið er blautt en ég bætti við slatta af hveiti þegar ég hnoðaði í vélinni... lét það svo hefast (virtist samt ekkert hefast í skálinni) svo þegar ég er búin að búa til snúðana þá hefast þeir mjög vel á plötunni á volgum stað áður en þeir fara inní ofninn:)

      Delete
  5. Mjög spennt fyrir þessari uppskrift! Hvað gaf þetta marga snúða?

    ReplyDelete
  6. Bakaði þetta áðan. Gerði mikla lukku.
    Takk fyrir

    ReplyDelete
  7. Þeir stækka aldrei hjá mér og deigið er oftast of blautt. Sé að þú segir blanda öllum þurrefnum saman, leyfiru gerinu ekki að vera smá í vökvanum?

    ReplyDelete