Ítölsk eggjakaka með klettasalati og nýrifnum Parmesan
Bökuð á pönnu sem má fara inn í ofn, stærðin á pönnunni er 26cm
- Olía + smá smör
- 1/2 blaðlaukur smátt skorinn
- 2 meðalstórar bökunarkartöflur, smátt skornar
- 1 krukka grilluð paprika (smá af olíunni líka eins og 2 msk)
- 9 Brúnegg , léttþeytt
- 1 dós sýrður rjómi
- 100 g rifinn ostur
- Handfylli rifinn Parmesan ostur
- Salt og pipar
Aðferð:
- Hitið olíu og smjör á pönnu. (Athugið að það þarf að nota pönnu sem má fara inn í ofn)
- Látið laukinn malla í olíunni/smjörinu í smá stund eða þar til hann verður mjúkur í gegn. Bætið þá kartöflum og steikið í 1 - 2 mínútur, því næst bætið þið grilluðu paprikunum út á pönnuna. Blandið öllu vel saman og kryddið til með salti og pipar, steikið á pönnunni í 3 - 4 mínútur.
- Á meðan létt pískið þið 0 egg og kryddið til með salti og pipar.
- Bætið rifnum osti saman við eggin og hellið eggjablöndunni út á pönnuna.
- Steikið á lágum hita í 6 - 8 mínútur.
- Setjið eggjakökuna inn í ofn við 180°C í 15 - 20 mínútur eða þar til eggjakakan er stíf í gegn og gullinbrún.
- Berið eggjakökuna fram með klettasalati og stráið gjarnan rifnum Parmesan osti yfir.
Ekki missa af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:50 á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.
No comments:
Post a Comment