Ég elska stökka kjúklingabita með góðri sósu og það er fátt sem jafnast á við safaríka, bragðmikla og stökka bita. Í síðasta þætti af Matargleði eldaði ég þessa einföldu kjúklingabita sem þið ættuð að prófa, hollari útgáfa að gómsætum kjúklingabitum.
Stökkir kjúklingabita í kornflexmulningi
Kartöflubátar
- 7 – 8 kartöflur, fremur stórar
- 1 rauðlaukur
- 4 hvítlauksrif
- salt og pipar
- ólífuolía
Aðferð:
- Skerið kartöflurnar í fjóra bita.
- Skerið rauðlaukinn í sneiðar og pressið hvítlauksrifin.
- Blandið öllu saman í skál með ólífuolíu og kryddið til með salti og pipar.
- Leggið í eldfast mót og bakið við 200° C í 40 – 45 mínútur. Mér finnst best að steikja kartöflurnar á pönnu í smá stund áður en ég læt þær í eldfast mót og inn í ofn.
Marinering
- 1 dós sýrður rjómi
- 2 tsk hunangs Dijon sinnep
- ½ tsk hvítlauksduft
- salt og pipar
- 4 kjúklingabringur
- 5 bollar kornfleks (1 bolli=2 dl)
- 2 tsk hvítlauksduft
- 2 tsk fersk steinselja
- 1 tsk tímían
- salt og pipar
- 1 msk ólífuolía
Aðferð:
- Skerið kjúklingabringurnar eða kjúklingakjötið í álíka stóra bita. Skolið kjötið og þerrið mjög vel.
- Hitið ofninn í 200°C.
- Blandið sýrða rjómanum, hunangs sinnepi, hvítlauksdufti, salti og pipar saman í skál. Setjið kjúklingabitana út í marineringuna og leyfið honum að marinerast í nokkrar mínútur (því lengur því betri verður kjúklingurinn)
- Setjið kornflex, hvítlauksduft, steinselju, tímían, salt, pipar og ólífuolíu í matvinnsluvél.
- Veltið kjúklingabitunum upp úr kornflexinu og þekjið hvern bita mjög vel.
- Leggið bitana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 200°C í 25 – 30 mínútur. Þegar eldunartíminn er hálfnaður snúið þið bitunum við og dreifið smá olíu yfir bitana.
- Berið fram með hunangssósu, kartöflubátum og fersku grænmeti t.d. agúrku og gulrætur.
Hunangssósa
1 dós sýrður rjómi
1 – 2 msk majónes
2 – 3 msk Dijon sinnep með hunangi
salt og nýmalaður pipar
1 hvítlauksrif
Aðferð:
Blandið öllum hráefnum vel saman í skál eða sem betra er í matvinnsluvél.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
No comments:
Post a Comment