Saturday, September 5, 2015

Chia grautur í krukku


 Chia fræ er mjög nærringarrík og eru flokkuð sem ofurfæða, það er því súper gott að byrja daginn á einum Chia graut sem er bæði fallegur og góður. Það tekur enga stund að skella í einn graut og finnst mér best að gera hann kvöldinu áður en þá þarf ég bara að grípa hann með mér í vinnuna og dagurinn verður strax þeim mun betri.

Chia grautur
  • 1 dl chia fræ
  • 2 dl möndlumjólk
  • ½ kókosmjöl
  • 1 dl frosin bláber
  • Ferskir ávextir t.d. jarðaber, bláber og banani.


Aðferð:


Hellið chiafræjum, kókösmjöli og möndlumjólki í skál og blandið saman. Bætið bláberjum saman við, helst frosnum og blandið. Hellið grautnum í krukku eða skál og geymið í ísskápnum yfir nótt. Skreytið grautinn gjarnan með ferskum ávöxtur.

Njótið vel. 

Ekki missa af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:50 á Stöð 2. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir



Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

1 comment:

  1. Sæl. Þetta hljómar mjög vel en er hægt að nota eitthvað annað en möndlumjöl fyrir þá sem eru með hnetuofnæmi?

    ReplyDelete